Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Seltjarnarnes og Vesturbæ

Heilsugæslan Seltjarnarnesi og Vesturbæ auglýsir eftir hjúkrunarfræðingi í fjölbreytt og skemmtileg störf hjúkrunar. Um er að ræða 80-100% ótímabundið starf og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf 1. september eða eftir nánara samkomulagi.

Við leitum að hjúkrunarfræðingi sem er tilbúinn að takast á við fjölbreytt verkefni á spennandi vettvangi sem er í sífelldri þróun. Heilsugæslan Seltjarnarnesi og Vesturbæ er fjölskylduvænn vinnustaður og á stöðinni er frábær starfsandi og góð samvinna á milli fagstétta.

Nánari upplýsingar um starfsemina má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is)

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfssvið heilsugæsluhjúkrunar er víðtækt. HH Seltjarnarnesi og Vesturbæ er með opna móttöku sem sinnir fólki á öllum aldri. Þá sinna hjúkrunarfræðingar bráðaerindum, bókuðum tímum og símaráðgjöf ásamt að svara Heilsuveruskilaboðum og einnig erindum sem ekki eru bráð s.s. ferðamannaheilsuvernd og sárameðferð ásamt heilsueflandi móttöku. Heilsueflandi móttaka felur í sér mat á heilsu skjólstæðinga og þörf þeirra á heilsueflingu.

Ung og smábarnavernd eflir heilsu, vellíðan og þroska ungra barna með reglulegum heilsufarsskoðunum ásamt stuðningi og heilbrigðisfræðslu til fjölskyldna þeirra.

Skólahjúkrunarfræðingur sinnir reglubundnu heilbrigðiseftirliti nemenda og fræðslu. Auk þess sinnir hann öðrum viðfangsefnum sem upp kunna að koma í samstarfi við annað starfsfólk skólans og foreldra eftir þörfum hverju sinni

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Þekking og áhugi á forvarnar- og heilsueflingarstarfi
  • Reynsla af heilsugæsluhjúkrun kostur
  • Reynsla af skólahjúkrun kostur
  • Sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
  • Reynsla og áhugi á teymisvinnu
  • Reynsla af bráða- og slysamóttöku er kostur
  • Mikil samskiptahæfni og sveigjanleiki
  • Íslenskukunnátta og góð almenn tölvukunnátta
Auglýsing stofnuð5. júlí 2024
Umsóknarfrestur15. júlí 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
Staðsetning
Suðurströnd 12, 170 Seltjarnarnes
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.HjúkrunarfræðingurPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar