Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Meðferðaraðili - Heilaörvunarmiðstöð HH

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar að metnaðarfullum sjúkraliða til starfa á Heilaörvunarmiðstöð HH sem hefur brennandi áhuga á geðheilbrigðismálum. Um er að ræða 80-100% ótímabundið starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. september eða eftir nánara samkomulagi.

Heilaörvunarmiðstöðin (HÖM) hóf starfsemi í janúar 2022. HÖM er meðferðareining innan HH þar sem veitt er svokölluð heilaörvun (e. brain stimulation) með TMS (e. Transcranial Magnetic Stimulation). Meðferðin krefst hvorki svæfingar né deyfingar og þolist vel. Í dag er er aðeins veitt meðferð við alvarlegu þunglyndi en gera má ráð fyrir að meðferðarúrræðum fjölgi með tímanum. Heilaörvun er nýleg viðbót innan geðlæknisfræðinnar sem þróast hefur hratt þar sem meðferðarformum hefur fjölgað. Hér er um að ræða fjölbreytt og spennandi en um leið krefjandi starf.

Á heilaörvunarsmiðstöðin starfar þverfaglegt teymi en í teyminu eru starfandi geðlæknir, hjúkrunarfræðingur, líffræðingur og sjúkraliði.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Móttaka skjólstæðinga
  • Veita skjólstæðingum meðferð frá degi til dags
  • Upplýsa og fræða skjólstæðinga og aðstandendur varðandi meðferð
  • Þátttaka í þróunarverkefnum og gæðastarfi
  • Skráning upplýsinga í Sögu kerfið og önnur kerfi eftir atvikum
  • Umsjón með tímabókunum og skipulagi meðferðar
  • Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt sjúkraliðaleyfi
  • Viðbótarnám í geðhjúkrun æskilegt
  • Reynsla af starfi innan geðheilbrigðisþjónustu kostur
  • Reynsla af sjúkraskrárkerfi Sögu æskileg
  • Geta til að vinna sjálfstætt, sýna frumkvæði og forgangsraða verkefnum
  • Góðir skipulagashæfileikar og reynsla af verkstjórn
  • Framúrskarandi hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Jákvæðni, sveiganleiki og lausnamiðað viðhorf
  • Vönduð, nákvæm og öguð vinnubrögð
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
Auglýsing stofnuð1. júlí 2024
Umsóknarfrestur6. ágúst 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
EnskaEnskaMjög góð
Staðsetning
Sunnukriki 3, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SjúkraliðiPathCreated with Sketch.Skipulag
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar