

Hjúkrunarfræðingar óskast á bæklunarskurðdeild
Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa á bæklunarskurðdeild B5 Fossvogi. Deildin er bráðabæklunardeild og þjónar sjúklingum eftir slys, áverka og eftir meiriháttar skurðaðgerðir. Þar starfa um 50 manns í þverfaglegu teymi og frábær starfsandi ríkir á deildinni sem einkennist af vinnugleði og metnaði. Markvisst er unnið að umbótum og framþróun.
Við bjóðum jafnt velkomna hjúkrunarfræðinga sem búa yfir þekkingu og reynslu sem og nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga. Í boði er einstaklingsbundin aðlögun undir leiðsögn reyndra hjúkrunarfræðinga. Störfin eru laus núna eða eftir nánara samkomulagi. Vinnufyrirkomulag og starfshlutfall samkomulag (20-100%), Einnig er óskað eftir hjúkrunarfræðingum sem eru tilbúnir að vinna í næturvaktahlutfalli 50%-60%.
Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er nú 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.













































