Skatturinn
Skatturinn

Gagnagreinandi

Við leitum að öflugum og metnaðarfullum sérfræðingi á sviði gagnagreiningar (Data Analyst) á upplýsingatæknisvið í höfuðstöðvum Skattsins í Katrínartúni í Reykjavík.

Skatturinn er framsækinn vinnustaður sem gegnir lykilhlutverki við tekjuöflun ríkis og sveitarfélaga. Með virku eftirliti, rannsóknum og tollgæslu stuðlum við að jafnræði og virkri samkeppni og vernd við samfélagið. Gildi Skattsins eru fagmennska, framsækni og samvinna.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Greina gögn og umbreyta þeim í hagnýta innsýn sem styður við stefnumótun og ákvarðanatöku.
  • Hanna, þróa og viðhalda skýrslum, mælaborðum og lykilmælikvörðum.
  • Safna, hreinsa og sannreyna gögn í samstarfi við önnur svið.
  • Túlka niðurstöður og setja þær fram með skýrum hætti, munnlega og skriflega.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun á sviði verkfræði, tölvunarfræði, tölfræði eða skyldra greina.
  • Góð kunnátta í SQL og/eða Python
  • Reynsla af BI-verkfærum (t.d. Power BI) er kostur
  • Góð greiningarhæfni og færni í miðlun upplýsinga
  • Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu mál
  • Góð færni í mannlegum samskiptum og hæfni til að vinna í nánu samstarfi við aðra sérfræðinga
  • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi
  • Skipulögð, nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð 
  • Hreint sakavottorð
Auglýsing birt27. febrúar 2026
Umsóknarfrestur9. mars 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Katrínartún 6
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.GagnagreiningPathCreated with Sketch.PythonPathCreated with Sketch.SQL
Starfsgreinar
Starfsmerkingar