
Sumarstörf á þjónustusviði Skattsins á Akureyri
Við leitum að áhugasömu og þjónustulunduðu fólki til sumarstarfa á starfstöð þjónustusviðs á Akureyri á tímabilinu frá 1. júní - 31. ágúst 2026.
Skatturinn er framsækinn vinnustaður sem gegnir lykilhlutverki við tekjuöflun ríkis og sveitarfélaga. Með virku eftirliti, rannsóknum og tollgæslu stuðlum við að jafnræði og virkri samkeppni og vernd við samfélagið. Gildi Skattsins eru fagmennska, framsækni og samvinna.
Á starfsstöð þjónustusviðs á Akureyri starfa sérfræðingar sem sinna þjónustu við viðskiptavini Skattsins auk þess að vera í miklum samskiptum við samstarfsfólk í mismunandi starfseiningum. Um er að ræða dagvinnu.
-
Stúdentspróf
-
Reynsla af þjónustustörfum er kostur
-
Góð íslensku- og enskukunnátta
-
Góð almenn tölvukunnátta
-
Rík þjónustulund, jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum
-
Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
-
Hreint sakavottorð
Íslenska
Enska










