Brunnur Ventures
Brunnur Ventures

Sérfræðingur / Greiningaraðili

Brunnur Ventures leitar að áhugasömum aðila í fjölbreytt og spennandi starf sérfræðings / greiningaraðila (e. Investment Analyst). Starfið felst í að greina fjárfestingakosti í mengi sprota- og vaxtarfyrirtækja auk samvinnu við frumkvöðla um margvísleg verkefni, t.d. undirbúning fjármögnunar og áætlanagerð.

Þetta er einstakt tækifæri fyrir einstakling sem vill kafa djúpt í heim fjárfestingastarfsemi vísisjóða, vinna náið með frumkvöðlum og taka þátt í að móta næstu einhyrninga Íslands.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Lifir og andar AI – notar gervigreind á framúrskarandi hátt í greiningarvinnu, fylgist daglega með nýjungum.
  • Brennandi áhugi á fjárfestingum, viðskiptum og sprotafyrirtækjum.
  • Góð tölvukunnátta og hæfni til að miðla upplýsingum í ræðu og riti á íslensku og ensku.
  • Háskólamenntun í raunvísindagreinum, s.s. verkfræði, lyfjafræði, tölvunarfræði, hagfræði, viðskiptafræði eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
  • Frumkvæði, drifkraftur og metnaður.
  • Talnagleggni, nákvæmni, sjálfstæði og öguð vinnubrögð.
Auglýsing birt23. febrúar 2026
Umsóknarfrestur8. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Laugavegur 7, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar