
Íslandsbanki
Íslandsbanki er alhliða banki með langa og sterka sögu sem nær aftur til ársins 1875. Við vinnum daglega að því að mæta fjölbreyttum þörfum viðskiptavina okkar með traustum rekstri, fagmennsku og mannlegri nálgun. Hlutverk okkar er að vera hreyfiafl til góðra verka, þannig að viðskiptavinir okkar geti náð árangri til lengri tíma.
Með skýra framtíðarsýn um að vera #1 í þjónustu vinna þrjár viðskiptaeiningar bankans náið saman að því markmiði að byggja og viðhalda sterkum, sjálfbærum viðskiptasamböndum.
Mannauðsstefna Íslandsbanka byggir á þeirri framtíðarsýn að vera besti vinnustaðurinn til að vaxa og þróast. Við leggjum áherslu á faglegt ráðningarferli, öfluga móttöku nýliða, fræðslu og starfsþróun, auk heilsu, vellíðanar og jafnvægis milli vinnu og einkalífs. Jafnrétti, fjölbreytni og mannréttindi eru grundvallaratriði í allri okkar starfsemi
Hjá Íslandsbanka starfa um 750 manns sem deila ástríðu fyrir árangri og vinna að lausnum fyrir viðskiptavini af metnaði, framsækni og fagmennsku. Við leggjum ríka áherslu á að skapa virði til framtíðar með framúrskarandi þjónustu, samvinnu og ábyrgri starfsemi.

Fyrirtækjaráðgjafi í útibú
Við leitum að þjónustulunduðum einstaklingi í starf fyrirtækjaráðgjafa í útibú okkar í Norðurturni. Starfið krefst mikillar þjónustulundar og hæfni í mannlegum samskiptum. Útibúið er hluti af Fyrirtækjamiðstöð Norðurturni.
Fyrirtækjamiðstöð er hluti af Viðskiptabanka sem veitir alhliða fjármálaþjónustu til lítilla og meðalstórra fyrirtækja.
Menntunar- og hæfniskröfur
Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði í starfi
Góð íslensku- og enskukunnátta
Helstu verkefni og ábyrgð
Þjónusta viðskiptavini í útibúi, síma og tölvupósti
Framkvæmd áreiðanleikakannana lögaðila
Ráðgjöf til fyrirtækja, félaga og húsfélaga varðandi vörur og þjónustu bankans
Önnur tilfallandi verkefni
Auglýsing birt13. maí 2022
Umsóknarfrestur22. maí 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Hagasmári 3, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiSamskipti í símaSamskipti með tölvupóstiSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (4)
Sambærileg störf (12)

Ráðgjafi sveitarfélaga
Wise lausnir ehf.

Ráðgjafi í viðskiptalausnum – tollamál og innkaup
Wise lausnir ehf.

Finance Officer
EFTA Secretariat

Fjármálasérfræðingur
BYKO

Verkefnastjóri rekstrar
Landsvirkjun

A&R fulltrúi / Verkefnastjóri tónlistarútgáfu og markaðsmála
Vetur Music

Sérfræðingur í orkumiðlun
Orkusalan

Samningastjóri
Veitur

Sérfræðingur í áætlanagerð hjá Coca-Cola á Íslandi
Coca-Cola á Íslandi

Féhirðir í Reykjanesbæ - tímabundið starf
Íslandsbanki

Sérfræðingur í launum og kjaramálum
Fjársýslan

Sérfræðingur á hugverkasviði
Hugverkastofan