Húsasmiðjan
Húsasmiðjan
Húsasmiðjan

Framkvæmdastjóri fjármála hjá Húsasmiðjunni

Við leitum að reynslumiklum, faglegum og árangursdrifnum framkvæmdastjóra fjármála Húsasmiðjunnar. Um er að ræða krefjandi og fjölbreytt starf í framkvæmdastjórn eins stærsta og þekktasta smásölufyrirtækis landsins. Viðkomandi mun gegna lykilhlutverki í áframhaldandi mótun, rekstri og vexti félagsins í hröðu og samkeppnisdrifnu umhverfi. Ennfremur ber þessi aðili ábyrgð á upplýsingatæknisviði fyrirtækisins.

Framkvæmdastjóri fjármála heyrir beint undir forstjóra, situr í framkvæmdastjórn og kemur að stefnumótun og öðrum ákvörðunum sem varða rekstur Húsasmiðjunnar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Heildarumsjón með fjármálum; fjárhagsáætlanir, greiningar, kostnaðareftirlit, sjóðstreymi og fjárfestingarákvarðanir
  • Tryggja áreiðanlegt og skilvirkt fjármálakerfi og innra verklag (reglur, umbætur, áhættustýring)
  • Leiða árlegt uppgjör og skýrslugerð til stjórnenda og eigenda, samskipti við endurskoðendur og bankastofnanir
  • Yfirumsjón með upplýsingatæknisviði; stefnumótun, innleiðing kerfa, gagnaöryggi og stafrænum lausnum sem styðja við verslun og rekstur
  • Stuðla að sjálfbærni og hagkvæmni í rekstri með gagnadrifnum ákvörðunum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Haldbær og fjölþætt reynsla af fjármálastjórnun
  • Sterkir leiðtogahæfileikar, greiningar- og samstarfshæfni
  • Mikil þekking á fjárhags- og greiningartólum, gagnaöryggi og stafrænum umbreytingum
  • Sterk leiðtogahæfni, samskiptahæfni, færni í stefnumótun, innleiðingu stefnu og breytingastjórnun
  • Mjög gott vald á íslensku og ensku, í töluðu og rituðu máli
  • Háskólapróf sem nýtist í starfi
Fríðindi í starfi
  • Heilsuefling, s.s. heilsufarsskoðun, bólusetning, aðgangur að sálfræðiþjónustu, heilsueflandi fræðsla.
  • Aðgangur að orlofshúsum.
  • Ýmsir styrkir, s.s. íþróttastyrkur, samgöngustyrkur og fræðslustyrkur.
  • Afsláttarkjör í verslunum okkar.
Auglýsing birt7. maí 2026
Umsóknarfrestur24. maí 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Kjalarvogur 12, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.SölumennskaPathCreated with Sketch.ViðskiptasamböndPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar