Borg Hótelrekstur ehf.
Borg Hótelrekstur ehf.
Borg Hótelrekstur ehf.

Yfirþerna - Hótel Borg og Apótek Hótel

Hótel Borg og Apótek Hótel auglýsir eftir sterkum leiðtoga í starf yfirþernu sem hefur yfirumsjón með daglegum þrifum á hótelinu, bæði á herbergjum, sameiginlegum rýmum og á útisvæði.

Hótel Borg og Apótek hótel eru glæsileg hótel í rekstri Keahótela ehf. og eru staðsett í hjarta Reykjavíkur. Hótelin eru í sögufrægum byggingum og búa yfir fallegri hönnun sem endurspeglar sögu hótelanna og hafa skipað sér verðugan sess í huga ferðamanna. Hótelin eru þekkt fyrir gæði og framúrskarandi þjónustu þar sem upplifun gesta er höfð í fyrirrúmi.

Hótelin hafa samtals 144 herbergi en þar af eru 14 svítur og tvær turnsvítur.

Sjá nánar um Hótel Borg og Apótek Hótel

Helstu verkefni og ábyrgð

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Sjá til þess að gestir hótelsins upplifi fullkomið hreinlæti og viðhald, daglega
  • Ábyrgð á daglegum rekstri þernudeildar
  • Gerð vaktaplana, ráðning og þjálfun starfsfólks
  • Skipuleggja dagleg þrif, skipuleggja innkaup og tryggja háan gæðastaðal
  • Fylgja gildandi stöðlum er varða heilbrigði og öryggi
Menntunar- og hæfniskröfur

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af herbergjaþrifum og stjórnun
  • Framúrskarandi hæfni í skipulagningu og mannlegum samskiptum
  • Reynsla af innkaupum og birgðahaldi
  • Frumkvæði, leiðtogahæfileikar, sjálfstæði í starfi og geta til að hvetja aðra starfsmenn áfram
  • Geta unnið um helgar og á almennum frídögum, gerist þess þörf
  • Framúrskarandi enskukunnátta er skilyrði. Íslenskukunnátta er kostur sem og þriðja tungumál.
Auglýsing birt4. maí 2026
Umsóknarfrestur10. maí 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Pósthússtræti 11, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Skipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar