

Framkvæmdastjóri
Síld og fiskur ehf er í leit að öflugum og umbótasinnuðum framkvæmdastjóra sem vill leiða framleiðslufyrirtæki í matvælarekstri. Um er að ræða krefjandi og áhrifamikið starf þar sem áhersla er lögð á stöðugar umbætur, skilvirkan rekstur, gæði og matvælaöryggi.
Síld og fiskur framleiðir og selur vörur undir merkjum Ali sem er eitt þekktasta vörumerki landsins. Hjá fyrirtækinu starfa um 80 manns.
Síld og fiskur ehf er dótturfélag Langasjávar ehf. sem er móðurfélag nokkurra fyrirtækja í framleiðslu og dreifingu á matvælum ásamt útleigu og þróun atvinnu- og íbúðarhúsnæðis. Langisjór veitir þjónustu á sviði fjármála, mannauðsmála, markaðsmála, upplýsingatæknimála og viðskiptaþróunar fyrir öll dótturfélögin.
- Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á daglegum rekstri félagsins og framfylgir stefnu stjórnar. Hann leiðir mótun og framkvæmd rekstraráætlana og langtímastefnu félagsins.
-
Ber ábyrgð á því að byggja upp og efla umbótamenningu þar sem starfsfólk er virkt í þróun og lausnamiðaðri hugsun.
-
Ber ábyrgð á skipulagi, stjórnunarteymi, vinnustaðamenningu og því að félagið hafi hæft starfsfólk til að ná markmiðum sínum.
-
Ber ábyrgð á reglulegri, gagnsærri og vandaðri upplýsingagjöf til stjórnar.
-
Tryggja hagkvæma nýtingu tækja, búnaðar og auðlinda.
-
Tryggja að starfsemi sé í samræmi við lög, reglur, öryggis- og gæðakröfur.
- Háskólamenntun í verkfræði, viðskiptafræði eða önnur menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af stjórnunarstörfum og rekstri nauðsyn
- Reynsla af stjórnunarstörfum í matvæla eða framleiðsluumhverfi kostur
- Sterk leiðtogahæfni og framúrskarandi samskiptahæfni
- Góð fjárhagsleg greiningarhæfni og stefnumiðuð hugsun
- Frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
- Góð íslensku- og enskukunnátta, í ræðu og riti
Íslenska










