
Eimskip
Hlutverk Eimskips er að veita áreiðanlegar heildarlausnir í flutningum á sjálfbæran hátt með árangur viðskiptavina að leiðarljósi. Við höfum verið traustur samstarfsaðili í alþjóðlegum flutningum frá árinu 1914 og rekum 56 skrifstofur í 20 löndum með um 1.700 starfsmönnum. Við tryggjum viðskiptavinum okkar áreiðanlegar heildarlausnir í flutningum meðal annars með áætlunarsiglingum og rekstri gáma- og frystiskipa í Norður-Atlantshafi, hafnarþjónustu, landflutningum, vöruhúsa- og frystigeymsluþjónustu og alþjóðlegu skrifstofuneti í flutningsmiðlun.
Hjá Eimskip er lögð sérstök áhersla á að skapa jákvæða menningu með sterkri liðsheild, tækifærum til þróunar, hvatningu til að sýna frumkvæði, opnum skoðanaskiptum og góðri miðlun upplýsinga.

Framkvæmdastjóri Innanlandssviðs – Eimskip
Eimskip leitar að reyndum og árangursdrifnum leiðtoga í starf framkvæmdastjóra Innanlandssviðs. Við viljum liðsfélaga sem leiðir áframhaldandi þróun og vöxt sviðsins og ber heildarábyrgð á rekstri, stefnumótun og árangri. Undir sviðið heyrir allur akstur og vörudreifing félagsins á Íslandi ásamt vöruhúsum, frystigeymslum og fasteignaumsjón. Þar starfa um 380 manns af 20 þjóðernum á 16 stöðum víðsvegar um landið.
Starfið krefst mikilla leiðtogahæfileika og góðs skilnings á rekstri, ásamt hæfni til að tengja stefnu við framkvæmd og þróa lausnir sem styðja við árangur viðskiptavina og félagsins í heild. Um er að ræða stöðu í framkvæmdastjórn, þar sem viðkomandi hefur bein áhrif á forgangsröðun og lykilákvarðanir félagsins.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á árangri og þróun sviðsins
- Ábyrgð á rekstrar- og fjárhagsáætlun, kostnaðar- og tekjustýringu og afkomu sviðsins í samræmi við lykilmælikvarða
- Móta stefnu og markmið og tryggja markvissa eftirfylgni
- Fylgja eftir þróun og breytingum með áherslu á samkeppnishæfni og vöxt
- Leiða þróun stjórnendateymis og mannauðs á sviðinu
- Stuðla að virðissköpun og lausnum sem mæta þörfum viðskiptavina
- Samskipti við viðskiptavini, samstarfsaðila og lykilhagsmunaaðila innan og utan félagsins
Menntunar- og hæfniskröfur
- Framúrskarandi leiðtogahæfileikar og samskiptahæfni
- Víðtæk reynsla af rekstri og stjórnun í krefjandi og síbreytilegu umhverfi
- Hæfileiki til að fá fólk með sér og leiða breytingar sem skila árangri
- Framsýni, frumkvæði, metnaður og drifkraftur
- Sterk greiningarhæfni og geta til að öðlast skýra yfirsýn í flóknu rekstrarumhverfi
- Hæfni til að taka upplýstar ákvarðanir og forgangsraða í krefjandi aðstæðum
- Mjög góð færni í íslensku og ensku, í ræðu og riti
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Auglýsing birt1. maí 2026
Umsóknarfrestur19. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Klettagarðar 15, 104 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (9)

Framkvæmdastjóri
Félagsbústaðir

Framkvæmdastjóra UMF Þórs og Knattspyrnufélagsins Ægis
UMF ÞÓR & ÆGIR

Viðskiptastjóri SaaS lausna
Viridi ehf.

Viltu stýra stærstu jarðhitaauðlindum Íslands?
Orkuveitan

Framkvæmdastjóri
Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands

Framkvæmdastjóri
Álkerfi

Framkvæmdastjóri Hattar
Íþróttafélagið Höttur

Framkvæmdastjóri Orlofssjóðs BHM
OBHM

Framkvæmdastjóri LungA-skólans á Seyðisfirði
LungA-skólinn ses