
Leikskólinn Lyngholt
Leikskólinn Lyngholt er sex deilda leikskóli fyrir börn á aldrinum 1-6 ára og er opnunartími skólans er 7:45- 16:15 alla virka daga.
Leikskólinn starfar í anda Uppbyggingarstefnunnar og með ART. Ásamt vinnu með farsæld barna í samvinnu við Fjarðabyggð.
,,Allir geta eitthvað, enginn getur allt" eru einkunnarorð skólans og leiðarljós okkar í öllu starfi. Því fær hver og einn notið sinna styrkleika því þannig byggjum við upp sterka sjálfsmynd.
Við sem erum í Lyngholti erum sjálfstæð og glöð og berum virðingu fyrir umhverfi okkar. Við tileinkum okkur jákvæðni, gleði, hreinskiptni og virðingu.

Aðstoðarleikskólastjóri við leikskólann Lyngholt, Reyðarfirði
Staða aðstoðarleikskólastjóra við leikskólann Lyngholt, Reyðarfirði er laus til umsóknar.
Í leikskólanum Lyngholti eru tæplega 90 nemendur. Skólastarfið er byggt á Uppeldi til ábyrgðar og ART. Kjörorð skólans eru "Allir geta eitthvað, engin getur allt".
Skólinn er einn af fimm leikskólum í Fjarðabyggð sem eru hluti af öflugu skólasamfélagi. Nánari upplýsingar á heimasíðu skólans, lyngholt.leikskolinn.is
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinnur náið með leikskólastjóra og sinnir ásamt honum daglegri stjórnun leikskólans og skipulagningu skólastarfsins.
- Er staðgengill leikskólastjóra í fjarveru hans.
- Tekur þátt í stefnumörkun skólans og gerð skólanámskrár.
- Er faglegur leiðtogi og fyrirmynd fyrir aðra starfsmenn þegar kemur að faglegu starfi.
- Tekur þátt í foreldrasamstarfi, upplýsingagjöf og kynningu á skólanum.
- Tekur þátt í skýrslu- og áætlanagerð.
- Sinnir þeim verkefnum er varðar stjórnun leikskólans sem yfirmaður felur honum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf til kennslu í leikskóla.
- Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar æskileg.
- Reynsla af starfi og stjórnun í leikskóla.
- Góð íslenskukunnátta
- Færni í mannlegum samskiptum, frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
- Forystuhæfni og góð færni í mannlegum samskiptum
- Fagleg forysta, sýn og vilji til nýbreytni og þróunar í leikskólastarfi
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Auglýsing birt5. maí 2026
Umsóknarfrestur1. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Heiðarvegur 5, 730 Reyðarfjörður
Starfstegund
Hæfni
ÁreiðanleikiFagmennskaHreint sakavottorðMannleg samskiptiSjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Leikskóli tækifæranna leitar að þér!
Vesturbyggð

Deildarstjóri
Leikskólinn Furuskógur

Sérkennsla í Blásölum
Leikskólinn Blásalir

Leikskólakennari/leiðbeinandi óskast til starfa
Leikskólinn Blásalir

Deildarstjóri stoðþjónustu - Víðistaðaskóli
Hafnarfjarðarbær

Aðstoðarskólastjóri Tónlistarskóla Árnesinga
Tónlistarskóli Árnesinga

Kennari í stoðþjónustu Hólabrekkuskóla
Hólabrekkuskóli

ÍSAT kennari Hólabrekkuskóla
Hólabrekkuskóli

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs - Vesturbyggð
Vesturbyggð

Umsjónarmaður hóptíma, þjálfunar og þróunar
Hreyfing

Deildarstjóri - HOLT
Leikskólinn Holt

Leikskólastjóri óskast í Grænatún
Grænatún