Barnaheill
Barnaheill

Framkvæmdastjóri

Barnaheill – Save the Children á Íslandi leita að framkvæmdastjóra fyrir samtökin. Framkvæmdastjóri starfar í umboði stjórnar, ber ábyrgð á rekstri samtakanna og vinnur náið í teymi með leiðtogum innlendra og erlendra verkefna.

Leitað er að kraftmiklum og framsæknum einstaklingi með sterkt tengslanet í starf þar sem reynir á frumkvæði, forystuhæfileika og samskiptahæfni. Viðkomandi þarf að hafa marktæka reynslu og þekkingu á fjármálum, mannauðsmálum, markaðsmálum og fjáröflun.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Yfirumsjón með daglegum rekstri samtakanna
  • Umsjón með fjáröflun og gerð styrkumsókna
  • Gerð fjárhagsáætlana og eftirfylgni með þeim
  • Gerð samstarfssamninga
  • Yfirumsjón með mannauðsmálum
  • Samskipti við stjórn og undirbúningur stjórnarfunda
  • Upplýsingagjöf og önnur samskipti við móðursamtök Save the Children
  • Samskipti við stjórnvöld, fyrirtæki og stofnanir

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun eða víðtæk reynsla af sambærilegu starfi er skilyrði, framhaldsmenntun er kostur
  • Farsæl reynsla af stjórnun og rekstri, fjáröflunarmálum og/eða markaðs- og sölumálum er skilyrði
  • Afburða leiðtoga- og samskiptahæfni
  • Góð hæfni í íslensku og ensku í ræðu og riti
  • Óbilandi áhugi á málefnum barna og velferð þeirra
  • Þekking á mannréttindum barna er kostur

Um er að ræða 100% starfshlutfall. Viðkomandi þarf að vera með hreint sakavottorð og verður að gangast við öllum þeim starfs- og siðareglum sem Barnaheill – Save the Children á Íslandi hafa sett sér og koma fram á vefsíðu samtakanna sem og barnaverndarstefnu samtakanna.

Auglýsing birt22. júlí 2022
Umsóknarfrestur7. ágúst 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Fákafen 9, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almannatengsl (PR)PathCreated with Sketch.FjárhagsáætlanagerðPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.ÍmyndarsköpunPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.SamningagerðPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.SölumennskaPathCreated with Sketch.Starfsmannahald
Starfsgreinar
Starfsmerkingar