
Mannauðssjóðurinn Hekla
Mannauðssjóðurinn Hekla sem hefur það hlutverk að veita styrki til fræðsluverkefna á vegum sveitarfélaga og stofnanna þeirra sem tengjast markvissri starfsþróun starfsfólks sveitarfélaga.
Auk þess rekur sjóðurinn mannauðssetur sem mótar stefnu og vinnur tillögur að fræðslutækifærum auk þess að styðja og skipuleggja fræðslu til stofnana m.a. um skipulag og framsetningu símenntunnaráætlana. Mannauðssetur leggur áherslu á samtarf við tengda fræðsluaðila.

FRAMKVÆMDASTJÓRI
Mannauðssjóðurinn Hekla auglýsir eftir framkvæmdastjóra.
Um nýtt starf er að ræða sem felur í sér spennandi tækifæri fyrir metnaðarfullan einstakling til að móta nýtt starf í fjölbreyttu starfsumhverfi. Meginmarkmið sjóðsins er að stuðla að framgangi og framþróun sveitarfélaga og stofnana þeim tengdum með markvissri starfsþróun félagsfólks stéttarfélaga starfsmanna sveitarfélaga innan BSRB.
Kostur ef viðkomandi getur byrjað sem fyrst.
Starfsstöð framkvæmdastjóra er á Akureyri.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Dagleg umsjón með fjármálum og rekstri sjóðsins
- Þjónusta við sveitarfélög og stofnanir þeirra
- Móttaka og úrvinnsla á umsóknum til sjóðsins
- Samtal um starfsþróunarmál og þarfagreiningar í símenntun starfsmanna sveitarfélaga
- Áætlanagerð; s.s. fjárhags- og fræðsluáætlanir
- Vinna að þróun og stefnumótun sjóðsins
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi
- Haldgóð reynsla sem nýtist í starfi
- Þekking og/eða reynsla af starfsmenntamálum, starfsemi félagasamtaka og stjórnsýslu sveitarfélaga
- Góð tölvukunnátta og tæknilæsi, þekking á DK kostur
- Greiningarhæfni, talnalæsi og gott vald á úrvinnslu og framsetningu upplýsinga
- Sjálfstæði, frumkvæði og ríkir skipulagshæfileikar
- Framúrskarandi hæfni til samstarfs og samskipta
- Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
Auglýsing birt20. desember 2024
Umsóknarfrestur20. janúar 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Skipagata 14, 600 Akureyri
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Framkvæmdastjóri óskast hjá Rammastúdíó
Innrömmun Rammastúdíó

Útibússtjóri Íslandsbanka á Ísafirði
Íslandsbanki

Forstöðukona/-maður framkvæmda hjá Veitum
Veitur

Sérfræðingur í mannauðsteymi
Securitas

Framkvæmdastjóri mannauðs - Heilbrigðisstofnun Austurlands
Heilbrigðisstofnun Austurlands

Fjármálastjóri Fangelsismálastofnunar
Fangelsismálastofnun

Mannauðs- og skrifstofufulltrúi
Kerecis

Framkvæmdastjóri
Blindrafélagið

Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar
Fjölmiðlanefnd

Framkvæmdastjóri
Hundaræktarfélag Íslands (HRFÍ)

Framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs
Veðurstofan

Fjármálastjóri Knattspyrnufélagsins Vals/Framkvæmdastjóri Hlíðarenda SES
Knattspyrnufélagið Valur