

Félagsráðgjafi á Laugarási, meðferðargeðdeild
Við leitum að öflugum liðsmanni í fullt starf á Laugarásinn meðferðargeðdeild. Um er að ræða tímabundið afleysingastarf í eitt ár frá 1. júní 2022 eða eftir samkomulagi.
Félagsráðgjöfum á Landspítala bjóðast fjölmörg tækifæri til sérhæfingar og starfsþróunar. Laugarásinn er meðferðargeðdeild sem heyrir undir geðþjónustu Landspítala. Þar er boðið upp á sérhæfða meðferð fyrir ungt fólk, á aldrinum 18-30 ára, með byrjandi geðrofssjúkdóm. Unnið er eftir gagnreyndu meðferðarmódeli um snemmtæka íhlutun með það að markmiði endurhæfa þjónustuþega aftur út í samfélagið. Mikið er lagt upp úr því að virkja þjónustuþega á allan mögulegan hátt á deildinni, úti í samfélaginu og í samstarfi við iðjuþjálfun á Kleppi. Starfsemi Laugarássins er í stöðugri þróun og er áhersla lögð á einstaklingsmiðaða þjónustu og virkt samstarf við aðstandendur.
Á deildinni starfa um 40 manns og einkennist samstarfið af þverfaglegri nálgun, greiningarvinnu og góðum starfsanda. Lögð er sérstök áhersla á starfsþróun. Boðið er upp á námskeið og handleiðslu í áhugahvetjandi samtalstækni, vikulega fræðslu, handleiðslu málastjóra sem og fræðslu og handleiðslu í grunnatriðum hugrænnar atferlismeðferðar.
























































