Landsnet hf.
Landsnet hf.
Landsnet hf.

Ert þú kerfisstjóri sem knýr framtíðina?

Við hjá Landsneti óskum eftir drífandi kerfisstjóra sem vill taka þátt í að reka eina af grunnstoðum innviðakerfis landsins. Með þinni aðkomu tryggjum við örugga og áreiðanlega raforkuflutninga um allt Ísland.

Helstu verkefni og ábyrgð

Í þessu hlutverki munt þú hafa umsjón með daglegum rekstri sérhæfðs hugbúnaðar og upplýsingatækni hjá Landsneti.  Verkefnin snúast um að tryggja stöðugan rekstur, hámarksafköst og öryggi tæknilausna fyrirtækisins.  Þú munt jafnframt leiða innleiðingu nýrra lausna, stýra tækniverkefnum í samræmi við upplýsingastefnu Landsnets og stuðla að sjálfbærri og skilvirkri framtíð raforkukerfisins.

Við leitum að einstaklingi sem

  • Er lausnamiðaður, skipulagður og með framúrskarandi samskiptahæfni.
  • Sýnir frumkvæði, drifkraft og áhuga á nýjustu tækniþróun.
  • Hefur sterka teymishugsun og getu til að vinna í nánu samstarfi við fjölbreyttan hóp sérfræðinga
  • Hefur þekkingu á Azure, Active Directory, Office(M365), helstu sýndarumhverfum, afritunarkerfum og öðrum netlausnum sem nýtast í rekstri nútíma tölvukerfa.
  • Hefur ríka öryggisvitund og er meðvitaður um mikilvægi rekstraröryggis
  • Menntun sem nýtist í starfi, s.s. kerfisstjórnun, tölvunar- og/eða kerfisfræði. Starfsreynsla getur vegið upp á móti formlegri menntun.
  • Reynsla af stjórnkerfi upplýsingaöryggis ISO 27001 kostur.
Fríðindi í starfi
  • Skemmtilegt vinnuumhverfi með aðstöðu til líkamsræktar, frábæru mötuneyti og svo margt fleira.
  • Stuðning við að vaxa í starfi og bæta við þig þekkingu.
  • Tækifæri til að vinna við verkefni sem skipta máli fyrir samfélagið!
Auglýsing birt12. desember 2024
Umsóknarfrestur2. janúar 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Gylfaflöt 9, 112 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar