Tæknimaður með netkunnáttu
Örugg afritun ehf er ört stækkandi upplýsingatæknifyrirtæki sem sérhæfir sig í kerfisþjónustu, afritun og fjarskiptum fyrirtækja.
Við leitum að drífandi og lausnamiðuðum einstaklingi til að ganga til liðs við okkar frábæra tækniteymi. Starfið er fjölbreytt og krefst sterkrar tæknikunnáttu og lipurðar í samskiptum.
Rekstur netkerfa: Viðhald, eftirlit og uppfærslur á netkerfum fyrirtækja til að tryggja hámarks árangur og öryggi.
Heimsóknir til viðskiptavina: Að veita persónulega þjónustu, leysa úr tæknilegum áskorunum og koma með ráðleggingar.
Innleiðingar: Skipulag og framkvæmd á innleiðingu nýrra kerfa og lausna, frá fyrstu stigum til lokaskila, ásamt innleiðingum á nýjum viðskiptavinum.
Úrbætur og hagræðing: Meta núverandi kerfi og þróa lausnir sem bæta afköst og einfalda rekstur.
- Reynsla og þekking á netkerfum (LAN, WAN, VPN o.fl.).
- Góð innsýn í netöryggi og varnir gegn áhættum.
- Hæfni í uppsetningu og stillingu netbúnaðar (s.s. Routera, Switcha og eldveggja).
- Þekking á Microsoft stýrikerfum
- Þekking á uppsetningu og rekstri símkerfalausna
- Þekking á netstýrikerfum og viðeigandi forritum er kostur.
- Þjónustulund og góðir samskiptahæfileikar.
- Skipulagshæfni og geta til að vinna sjálfstætt sem og í teymi.
- Ökuréttindi og vilji til að ferðast vegna vinnu eftir þörfum (aðallega á höfuðborgarsvæðinu).
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði
- Krefjandi og skemmtilegt starf í ört vaxandi fyrirtæki.
- Sveigjanleika og möguleika á faglegum vexti.
- Samkeppnishæf kjör og tækifæri til þjálfunar.
- Frábæran vinnustað þar sem hugmyndir eru velkomnar og metnaður starfsfólks fær að njóta sín.