Ósar - lífæð heilbrigðis
Ósar - lífæð heilbrigðis
Ósar - lífæð heilbrigðis

Deildarstjóri upplýsingatækni hjá Ósum

Ósar hf. leita að metnaðarfullum og framsýnum einstaklingi til að veita upplýsingatæknimálum og stafrænni vegferð samstæðunnar forstöðu.

Meginhlutverk deildarinnar er að tryggja öruggt aðgengi starfsmanna og viðskiptavina Ósa og dótturfélaganna Icepharma og Parlogis að kerfum og gögnum og hámarka uppitíma á rekstri tölvukerfa. Framundan eru spennandi verkefni sem snúa að uppbyggingu og þróun.

Helstu verkefni og ábyrgð

·         Ábyrgð á upplýsingatæknistefnu og stafrænni þróun Ósa

·         Ábyrgð á stjórnun og daglegum rekstri upplýsingatæknideildar

·         Ábyrgð á samskiptum er varða rekstur og þróun upplýsingatæknimála dótturfélaga

·         Ábyrgð á samskiptum við úttektaraðila sem varða upplýsingatæknimál

·         Samningagerð og kostnaðareftirlit

·         Breytingastjórnun og ábyrgð á innleiðingum kerfa og fræðslu til starfsmanna

Menntunar- og hæfniskröfur

·         Menntun sem nýtist í starfi, s.s. tölvunarfræði, verkfræði eða sambærileg

·         Farsæl reynsla í starfi og þekking á upplýsingatæknimálum

·         Reynsla af innleiðingu breytinga

·         Frumkvæði og drifkraftur

·         Framúrskarandi samskiptahæfni og þjónustulund

·         Hæfni til að miðla upplýsingum

·         Reynsla af gæðakerfum

·         Gott vald á íslensku og ensku, bæði munnlegri og skriflegri

Fríðindi í starfi

·            Hollur og góður matur í hádeginu

·            Reglulegir heilsufyrirlestrar á vinnutíma

·            Sérkjör á heilsuvörum, vítamínum og íþróttafatnaði

·            Fjölbreytt úrval af vítamínum og steinefnum á vinnustaðnum

·            Heilsufarsmælingar

·            Líkamsræktarstyrkir

·            Styrkir úr heilsusjóði Ósa sem hvetur til heilsueflingar starfsmannahópa

 

Auglýsing birt5. október 2023
Umsóknarfrestur18. október 2023
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Lyngháls 13/Krókh 14 13R, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.TölvuöryggiPathCreated with Sketch.Umsýsla gæðakerfa
Starfsgreinar
Starfsmerkingar