Barnaskólinn í Hafnarfirði - Umsjónarkennsla með 2. bekk
Laus er tímabundin 100% staða umsjónarkennara á yngsta stigi (2. bekkur) við Barnaskóla Hjallastefnunnar í Hafnarfirði frá 1. desember eða fyrr. Staðan er auglýst vegna fæðingarorlofs.
Um er að ræða umsjónarkennslu með litlum hópi, 13 börn. Föst viðvera kennara er frá kl. 8:00-13:45 alla virka daga utan fundar frá kl. 14:00-15:30 einn dag í viku. Hjallastefnan er með kjarasamning við FG með ákvæði um aukna viðveru með börnum og fyrir það eru greiddir auka flokkar.
Í Barnaskólanum starfar einstaklega flottur og jákvæður hópur fólks og því leitum við að jákvæðum og lífsglöðum kennurum sem er tilbúnir að tileinka sér starfshætti Hjallastefnunnar af gleði og kærleika. Viðkomandi þurfa að sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og hafa áhuga á jafnrétti og lýðræði í skólastarfi. Námsumhverfið er mjög lifandi þar sem sköpun er í fyrirrúmi því ekki er um bókastýrða kennslu að ræða.
Barnaskóli Hjallastefnunnar í Hafnarfirði er í einstaklega fallegu og skemmtilegu umhverfi með Víðistaðatúnið í bakgarðinum. Skólann sækja börn á aldrinum 5-9 ára. Jafnréttisuppeldi, skapandi hugsun, félagsþjálfun og einstaklingsstyrking eru innviðir hugmyndafræðinnar sem við teljum að geti skipt sköpum í þroska komandi kynslóða. Við hvetjum öll kyn til að sækja um starfið.
Umsjónarkennsla með 2. bekk
Leyfisbréf til kennslu á grunnskólastigi
Frír hádegismatur