Hjallastefnan
Hjallastefnan er kærleiksmiðuð og skapandi lýðræðisstefna. Hjallastefnan rekur í dag 14 leikskóla og þrjá grunnskóla.
Drifkrafturinn í rekstri Hjallastefnunnar er sú skólahugsjón sem allt starf Hjallastefnunnar byggir á. Starfsfólk fyrirtækisins trúir því staðfastlega að starf þeirra skipti miklu máli og að það eigi með vinnu sinni þátt í því að skapa betri framtíð fyrir börn þessa lands.
Jafnréttisuppeldi, jákvæðni, agi, skapandi hugsun, félagsþjálfun og einstaklingsstyrking eru innviðir í námskrá Hjallastefunnar sem við teljum að geti skipt sköpum í þroska þeirra einstaklinga sem okkur er treyst fyrir. Einnig er trú okkar að öflugt fyrirtæki í sjálfstæðum skólarekstri geti skapað nýjungar og unnið að tilraunaverkefnum sem veiti hinu opinbera kerfi nauðsynlegt og tímabært aðhald í því að efla fagstarf sitt og þjónustu – öllum börnum til hagsbóta.
Skólar Hjallastefnunnar starfa sjálfstætt undir stjórn síns leik- eða grunnskólastjóra sem hefur yfirumsjón með og ber ábyrgð á daglegum rekstri skólans. Þannig hefur hver skóli sitt eigið andrúmsloft og sína eigin menningu en allir starfa þeir þó að sameiginlegu markmiði og eftir sömu námskrá sem liggur til grundvallar öllum þáttum fagstarfsins.
Síðdegisvakt á leikskólanum Litlu Ásum við Vífilsstaði GB
Við leitum að áræðanlegum glöðum og hressum starfsfkröftum í síðdeigisstarf með börnunum á Litlu Ásum frá kl: 14:00 til 16:30 (16:00 á föstudögum). Við lofum fjörugu og skemmtilegu starfi með börnum og foreldrasamskiptum í fallegu umhverfi við Vífilsstaðaveg 118 í Garðabæ.
Helstu verkefni og ábyrgð
Að veita litlum börnum gleði, ást og öryggi í lok dagsins ásamt því að spjalla við foreldra og yfirfara og loka leikskólanum.
Menntunar- og hæfniskröfur
Mjög góð íslenskukunnátta og hæfni í mannlegum samskiptum
Auglýsing birt10. september 2024
Umsóknarfrestur20. september 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Vífilsstaðavegur 123, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
HeiðarleikiHreint sakavottorð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (4)
Sambærileg störf (12)
Leikskólakennari/leiðbeinandi
Leikskólinn Steinahlíð
Stuðningsfulltrúar
Arnarskóli
Leikskólar LFA - Viltu vera með ?
LFA ehf.
Frístundarleiðbeinendur við frístundaheimili á Reyðarfirði
Fjarðabyggð
Frístundarleiðbeinandi í félagsmiðstöðvar Fjarðabyggðar
Fjarðabyggð
Deildarstjóri sérkennslu við Eskifjarðarskóla
Fjarðabyggð
Stuðningsfulltrúi í fjölgreinadeild - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær
Sjálandsskóli óskar eftir dönskukennara á unglingastig
Garðabær
Frístundastarfsmaður óskast
Helgafellsskóli
Leikskólastarfsfólk óskast
Helgafellsskóli
Stuðningsfulltrúi í frístundaheimilið- Gulahlíð
Kringlumýri frístundamiðstöð
Komdu í lið með skemmtilegu fólki í frístund Landakotsskóla
Landakotsskóli