

Almenn umsókn
Hjá Héðni starfar fjölbreyttur hópur fólks – allt frá iðnaðarmönnum til verkfræðinga, stjórnenda og sérfræðinga í stoðþjónustu. Við erum alltaf að leita að öflugum einstaklingum sem hafa áhuga á að taka þátt í krefjandi og fjölbreyttum verkefnum í nútímalegu tæknifyrirtæki með langa sögu og sterka framtíðarsýn.
Við hvetjum þig til að sækja um, jafnvel þótt ekki sé auglýst starf sem hentar nákvæmlega þér í augnablikinu. Með almennri umsókn gefur þú okkur tækifæri til að kynnast þér og hafa samband þegar ný tækifæri skapast.
Við viljum heyra frá þér ef þú:
-
Hefur áhuga á iðnaði, tækni og lausnamiðaðri vinnu.
-
Ert jákvæð/ur, samvinnufús og tilbúin/n að leggja þitt af mörkum í sterku teymi.
-
Vilt þróast í starfi, læra nýtt og takast á við spennandi áskoranir.











