Vörustjóri á Brjóstamiðstöð / Stafrænni framþróun
Á Brjóstamiðstöð / Stafrænni framþróun er laust starf vörustjóra. Vörustjóri er hluti af teymi innan Stafrænnar þróunar en starfar fyrst og fremst á Brjóstamiðstöð Landspítala.
Við leitum að öflugum og metnaðarfullum liðsmanni til að sinna fjölbreyttum og krefjandi verkefnum á sviði heilbrigðis- og upplýsingatækni. Viðkomandi þarf að vera hugmyndaríkur, jákvæður og lausnamiðaður og eiga auðvelt með að vinna í teymi. Starfið er laust 1. október 2024 eða eftir nánara samkomulagi.
Brjóstamiðstöð er innan hjarta-, augna- og krabbameinsþjónustu Landspítala og starfa þar um 700 starfsmenn í 460 stöðugildum. Á sviðinu starfa margar heilbrigðisstéttir og þar er veitt þjónusta fyrir mörg af algengustu og alvarlegustu heilsufarsvandamálum landsmanna. Stafræn framþróun er innan þróunarsviðs og þar starfa um 100 starfsmenn sem styðja við þjónustu spítalans m.a. með tæknilegri aðkomu, verkefnastjórnun, þróun nýrra lausna og nýsköpun.