Hjúkrunardeildarstjóri Vökudeildar
Starf hjúkrunardeildarstjóra Vökudeildar er laust til umsóknar. Við leitum að kraftmiklum stjórnanda til að leiða og efla starfsemi deildarinnar og byggja upp sterka þverfaglega liðsheild og menningu sálræns öryggis. Starfið er unnið í nánu samstarfi við forstöðuhjúkrunarfræðing, framkvæmdastjóra og annað samstarfsfólk.
Starfsfólk Barnaspítala Hringsins sinnir breiðum skjólstæðingahópi frá fæðingu að 18 ára aldri og fjölskyldum þeirra. Stefnan er að veita fjölskyldumiðaða þjónustu þar sem öryggi, fagmennska og umhyggja er höfð að leiðarljósi og sjónarmið þjónustuþega eru nýtt til umbóta.
Hjúkrunardeildarstjóri er leiðtogi og hefur þríþætta ábyrgð sem stjórnandi: faglega ábyrgð, starfsmannaábyrgð og fjárhagslega ábyrgð. Næsti yfirmaður er forstöðuhjúkrunarfræðingur kvenna- og barnaþjónustu.
Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. desember 2024 eða eftir samkomulagi.
Education and requirements
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Starfsreynsla sem hjúkrunarfræðingur
Framhaldsmenntun í hjúkrun og/eða önnur framhaldsmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi er kostur
Farsæl reynsla af uppbyggingu og stýringu mannauðs er kostur
Farsæl reynsla af stjórnun og rekstri er kostur
Leiðtogahæfni, áhugi og vilji til að leiða breytingar og umbætur
Mjög góð hæfni í samskiptum og jákvætt viðmót
Hæfni til að leiða teymi
Sýn og hæfni til að leiða faglega þróun hjúkrunar og gæða- og öryggismál
Jákvætt lífsviðhorf, lausnamiðuð nálgun og framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfileikar¿
Frumkvæði og metnaður til að ná árangri
Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í mæltu og rituðu máli
Hreint sakavottorð
Responsibilities
Fagleg ábyrgð á uppbyggingu, skipulagi og þróun starfseminnar, setur markmið um gæði og öryggi og tryggir eftirfylgni
Starfsmannaábyrgð, þ.e. ábyrgð á uppbyggingu mannauðs og daglegri stjórnun starfsmanna á deildunum
Fjárhagsleg ábyrgð, þ.e. ábyrgð á rekstrarkostnaði deildanna
Hefur forystu um áframhaldandi uppbyggingu, skipulag og þróun deildarinnar í samráði við yfirlækna og forstöðustjórnendur Kvenna og barnaþjónustu Landspítala
Tryggir að öryggis-, gæða- og umbótastarfi sé framfylgt
Þátttaka í vísinda- og rannsóknarstarfi
Starfar náið með deildarstjórum hjúkrunar innan Kvenna og barnaþjónustu og er virkur þátttakandi í samstarfi þeirra á milli
Framfylgir stefnu og áherslum framkvæmdastjórnar Landspítala