Hjúkrunarfræðingur á göngudeild innkirtla- og gigtarsjúkdóma
Göngudeild innkirtla- og gigtarsjúkdóma óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing til starfa með áherslu á starf innan innkirtlateymis. Við leitum eftir hjúkrunarfræðingi sem þrífst á spennandi verkefnum, sýnir þjónustulund, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum auk þess að eiga auðvelt með að vinna í teymi. Um er að ræða fjölbreytt starf á góðum vinnustað. Deildin er staðsett í nýuppgerðu húsnæði á Eiríksstöðum, Eiríksgötu 5.
Á deildinni starfar öflugt teymi heilbrigðisstarfsmanna með sterka framtíðarsýn á þjónustu við sjúklinga þar sem unnið er eftir gagnreyndri þekkingu. Áhersla er á tækninýjungar og fjarþjónustu. Við leggjum metnað í að veita góða aðlögun með reyndum hjúkrunarfræðingum deildarinnar.
Starfið er laust nú þegar eða eftir nánara samkomulagi. Deildin sinnir göngudeildarþjónustu vegna gigtarsjúkdóma annars vegar og innkirtlasjúkdóma hins vegar. Einnig er starfrækt þar miðstöð sjaldgæfra sjúkdóma.