Klínískur lyfjafræðingur
Viltu vinna á skemmtilegum vinnustað með fjölbreytt verkefni? Fórst þú í lyfjafræði til að vinna náið með öðrum heilbrigðisstéttum? Hefur þú áhuga á að vinna í teymi fólks sem brennur fyrir því sem það er að fást við á hverjum degi? Þá gætum við verið með rétta starfið fyrir þig.
Lyfjaþjónusta Landspítala leitar að öflugum klínískum lyfjafræðingum með sterka þjónustulund og færni til að móta nýtt verklag í samstarfi við aðra lyfjafræðinga sem og aðrar fagstéttir. Við sækjumst eftir klínískum lyfjafræðingum sem eru sveigjanlegir, framsæknir og tilbúnir að takast á við verkefni í mótun. Um er að ræða dagvinnu en einnig býðst klínískum lyfjafræðingi að taka bakvaktir og eitrunarvaktir.
Lyfjaþjónusta er stöðugt að þróa starfsemi sína til að bæta lyfjaöryggi og lyfjaumsýslu á Landspítala. Nú starfa um 40 lyfjafræðingar í fjölbreyttum verkefnum á Landspítala. Það er mikil framþróun innan Lyfjaþjónustu og hafin er vinna við mótun verkferla og eflingu þjónustustigs.