Sótthreinsitæknir eða sérhæfður starfsmaður í skol á skurðstofu Hringbraut
Við óskum eftir sótthreinsitækni eða sérhæfðum starfsmanni til starfa á skurðstofur Landspítala við Hringbraut. Starfið er dagvinnustarf með breytilegum vinnutíma og bakvöktum um helgar. Ráðið er í starfið sem fyrst, eða eftir nánari samkomulagi. Starfshlutall er 80-100%. Lágmarksaldur umsækjenda er 20 ár.
Á skurðstofum Landspítala við Hringbraut eru 11 skurðstofur sem þjóna 7 sérgreinum og árlega eru framkvæmdar þar um 10 þúsund aðgerðir. Þar starfa um 90 einstaklingar; hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar, sótthreinsitæknar, skrifstofufólk og sérhæft starfsfólk við fjölbreytt og krefjandi verkefni, sem unnin eru í nánu samstarfi við fagfólk í öðrum sérgreinum. Gagnreynd þekking, viðurkenndir verkferlar, öryggi sjúklinga og teymisvinna eru höfð í fyrirrúmi og er starf sérhæfðs starfsmanns mikilvægur hlekkur í góðri þjónustu við sjúklinga.