Sérfræðilæknir í kvenlækningateymi
Laust er til umsóknar starf sérfræðilæknis í kvenlækningateymi kvenna- og barnaþjónustu Landspítala.
Um er að ræða starf við almennar kvenlækningar og felst starfið í göngudeildarþjónustu, bráðaþjónustu, legudeildarþjónustu og aðgerðum og því mikilvægt að hafa góða reynslu á þessu sviði. Starfshlutfall er 100% og er starfið laust frá 1. janúar 2025 eða eftir samkomulagi.
Í kvenlækningateyminu er lögð áhersla á þverfaglega samvinnu tengt sjúkdómum í kvenlíffærum, auk þess er náin samvinna með fæðingarteymi Landspítala, þar sem samstarf er um læknisþjónustu utan dagvinnutíma með sérfræðilæknum fæðingarteymis. Viðkomandi sérfræðilæknir mun vera þátttakandi í starfssemi Endóteymis Landspítala.
Mikil uppbygging hefur átt sér stað í teymis- og gæðastarfi í kvenlækningarteymi á undanförnum árum og mikilvægt að umsækjandi sé tilbúinn til að taka þátt í áframhaldandi þróun sérgreinarinnar ásamt undirbúningi við flutning sérgreinarinnar í nýjan spítala.