Búsetukjarninn Langahlíð
Búsetukjarninn Langahlíð
Búsetukjarninn Langahlíð

Deildarstjóri óskast í búsetukjarna í Mosfellsbæ

Mosfellsbær leitar að öflugum og framsæknum deildarstjóra til að koma inn í öflugt stjórnendateymi í búsetukjarna við Skálahlíð 11a.

Í Skálahlíð 11a búa sjö einstaklingar með fötlun og er þeim veitt einstaklingsmiðuð þjónusta og áhersla lögð á að auka víðsýni þeirra og félagslega virkni. Starfsmenn vinna eftir hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar sem og þjónustu- og starfsáætlunum.

Deildarstjóri mun taka þátt í og leiða uppbyggingu á kjarnanum, þar á meðal koma að ráðningum starfsfólks og þjálfun þess, skipulagningu teymisvinnu, vaktaskýrslugerð og samskiptum við íbúa og aðstandendur. Deildarstjóri mun sjá um afleysingar fyrir forstöðumann.

Deildarstjóri vinnur eftir lögum og reglugerðum í þjónustu við fatlað fólk sem eiga við, sem og stefnu Mosfellsbæjar í málaflokknum og tryggir að allt starfsfólk vinni eftir sömu fyrirmælum.

Deildarstjóri leggur sig fram við að skapa öfluga liðsheild sem stuðlar að samræmdum einstaklingsmiðuðum vinnubrögðum til aukinnar velferðar fyrir íbúana.

Um er að ræða 100% starf í vaktavinnu og viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsfólks í daglegu lífi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Skipuleggja faglegt starf í samráði við forstöðumann

Koma að starfsmannamálum heimilisins og vaktaskýrslugerð

Leiða innra starf á heimilinu í samráði við forstöðumann

Bera ábyrgð á að starfsmenn vinni eftir hugmyndafræði Mosfellsbæjar í málaflokki fatlaðs fólks, stuðli að valdeflingu íbúa og veiti þeim góða þjónustu í samræmi við þau lög, reglur og alþjóðlegar skuldbindingar sem um starfssemina gilda og kröfulýsing kjarnans segir til um.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Starfsleyfi sem þroskaþjálfi eða háskólamenntun á sviði heilbrigðis-, mennta- eða félagsvísinda
  • Reynsla af og metnaður fyrir starfi með fötluðu fólki er skilyrði
  • Góðir skipulags- og stjórnunarhæfileikar
  • Mikil hæfni í samskiptum og leiðtogahæfileikar
  • Frumkvæði, sjálfstæði og nákvæmni í vinnubrögðum
  • Þekkingu á hugmyndafræði sjálfstæðs lífs, þjónandi leiðsagnar og valdeflingar.
  • Framúrskarandi íslenskukunnátta
  • Krafa er gerð um bílpróf
  • Hreint sakavottorð

 

Advertisement published19. September 2024
Application deadline3. October 2024
Language skills
IcelandicIcelandicExpert
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Driver's licencePathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Planning
Professions
Job Tags