Landsvirkjun
Við hjá Landsvirkjun vinnum rafmagn úr endurnýjanlegum orkugjöfum og rekum 15 vatnsaflsstöðvar, þrjár jarðvarmastöðvar og tvær vindmyllur í rannsóknaskyni, á fimm starfssvæðum víðs vegar um land. Höfuðstöðvar okkar eru í Reykjavík.
Við leggjum áherslu á að byggja upp metnaðarfullt starfsumhverfi sem nærir öfluga liðsheild, árangur og hvetjandi starfsanda.
Við tryggjum starfsfólki góðan aðbúnað og sveigjanleika til að einfalda og auðvelda heilbrigða samþættingu vinnu og einkalífs. Stöðugt er hlúð að vellíðan og farsæld starfsfólks og unnið með heilsutengdar forvarnir, öryggi og vinnuvernd.
Við fögnum fjölbreytileikanum og leggjum áherslu á jafnrétti í öllum okkar störfum.
Sérfræðingur á sviði samfélags og umhverfis
Við á sviði samfélags og umhverfis leitum að öflugum teymisfélaga. Við berum virðingu fyrir náttúru landsins og ásýnd þess og leggjum áherslu á að þekkja og draga úr umhverfisáhrifum starfseminnar. Í teyminu færð þú tækifæri til að starfa í fjölbreyttu og hvetjandi starfsumhverfi og hjálpa okkur að vanda til verka í þeim stóru framkvæmdum sem framundan eru.
Starfsstöð er í Reykjavík.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Taka þátt í framkvæmdaverkefnum.
- Fylgja eftir innri og ytri kröfum sem varða umhverfis-,leyfis- og skipulagsmál.
- Halda utan um umhverfis- og samskiptaáætlanir framkvæmdaverkefna.
- Taka þátt í umbótaverkefnum sem snúa að umhverfismálum og stýringu umhverfisáhrifa vegna framkvæmdaverkefna.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun á háskólastigi í verkfræði, umhverfisfræði eða öðrum sambærilegum greinum.
- Þekking á umhverfismálum og áhugi á náttúru Íslands.
- Reynsla af framkvæmdum eða undirbúningi framkvæmda er kostur.
- Skipulagsfærni, vilji til að læra og lausnamiðuð hugsun.
- Jákvætt viðhorf og sjálfstæð vinnubrögð.
Advertisement published13. September 2024
Application deadline22. September 2024
Language skills
IcelandicExpert
Location
Katrínartún 2, 105 Reykjavík
Type of work
Skills
Human relationsIndependenceTeam work
Work environment
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)
Verkefnastjóri í upplýsingatækni
Landsnet hf.
Operation and Maintenance Engineer
Carbfix
Deildarstjóri á Mannvirkjasviði
Norconsult Ísland ehf.
Forstöðumaður Viðskiptaeftirlits
Íslandsbanki
DSP development Technician (R&D)
Alvotech hf
Sérfræðingur í úttektum á stjórnkerfistöðlum
BSI á Íslandi ehf.
Deildarstjóri fjárstýringar
RARIK ohf.
Verkefnastjóri á framkvæmdadeild
Vegagerðin
Verkfræðingur
Strendingur ehf.
Verkefnastjóri - Eygló
Eygló
Vef-forritarar á upplýsingatæknisviði
Arion banki
Verkefnastjóri - vinnuáætlanir og innri störf
PwC