

Verkefnastjóri reikningshalds
Við leitum að verkefnastjóra sem hefur metnað til að ná árangri, vinnur sjálfstætt og býr yfir góðri samskiptahæfni. Ef þú hefur gaman af því að vinna með fólki og vilt taka þátt í að skapa jákvæð áhrif í öflugu teymi, þá er þetta starf fyrir þig.
Um fullt starf er að ræða en starfið heyrir undir fjármáladeild á stjórnsýslu- og fjármálasviði sem starfar þvert á önnur svið bæjarins. Fjármáladeild hefur í höndum fjárstýringu, reikningshald, yfirumsjón með fjárhagsáætlun, lánastýringu, umsjón með gjaldskrám og fleira.
Verkefnastjóri reikningshalds ber ábyrgð á bókhaldi Akraneskaupstaðar, stýrir bókhaldsvinnu sveitarfélagsins, gerð uppgjörs, þróun verkferla og stýringu fjárhagsupplýsingakerfa. Fjárhagskerfi Akraneskaupstaðar er Microsoft Dynamics 365 Business Central.
- Yfirumsjón með öllu bókhaldi Akraneskaupstaðar og stofnana bæjarins, eignakerfi, afstemmingu og annarri bókhaldsvinnu
 - Ábyrgð á skipulagi bókhalds og að vinnubrögð séu í samræmi við lög og viðurkenndar reikningsskilareglur
 - Yfirumsjón með skráningu reikninga og samþykktum þeirra
 - Yfirumsjón með virðisaukaskattsmálum
 - Ýmis uppgjörs- og greiningarvinna
 - Ábyrgð og umsjón með gerð árshlutauppgjöra og ársreikninga Akraneskaupstaðar og undirfyrirtækja
 - Samskipti við endurskoðendur vegna ársreiknings
 - Ráðgjöf og stuðningur við notendur fjárhagskerfis
 - Ábyrgð á stofnun notenda og aðgangsstýringu í BC
 - Þátttaka í fjárhagsáætlanagerð og innra eftirliti
 
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi t.d. á sviði fjármála, viðskiptafræði, hagfræði, endurskoðunar eða skyldum greinum
 - Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi er kostur
 - Þekking og reynsla á færslu, skipulagningu og uppgjöri bókhalds er skilyrði
 - Þekking á lögum og reglum um bókhald og reikningsskil sveitarfélaga ásamt lögum um virðisaukaskatt er kostur
 - Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
 - Góð tölvukunnátta og færni í Excel er skilyrði
 - Góð þekking og reynsla af Business Central (BC) er kostur
 - Rík þjónustulund, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
 - Frumkvæði og metnaður til að ná árangri
 - Jákvætt viðmót og góð samskiptahæfni
 
- Góður og sveigjanlegur vinnustaður
 - 36 stunda vinnuvika
 - Heilsueflingarstyrkur
 
Icelandic
English










