Isavia / Keflavíkurflugvöllur
Isavia / Keflavíkurflugvöllur
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Bókari

Viltu starfa með öflugu teymi starfsfólks sem sinnir lykilverkefnum í fjármálum og bókhaldi? Við leitum að vandvirkum og lausnamiðuðum bókara sem hefur áhuga á að vinna í fjölbreyttu og faglegu umhverfi þar sem nákvæmni og samvinna skipta máli. Bókari ber ábyrgð á bókun reikninga og afstemmingarvinnu efnahagsliða hjá Isavia ohf. og dótturfélögum.

Helstu verkefni

  • Móttaka og skráning reikninga
  • Almennar bókhaldsfærslur
  • Afstemmingarvinna
  • Ýmis tilfallandi bókhaldsverkefni

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Reynsla af bókhaldi skilyrði
  • Þekking á BC bókhaldskerfi er kostur
  • Samstarfshæfni og jákvætt hugarfar
  • Frumkvæði og umbótahugsun
  • Góð þekking á að nýta tæknilausnir til að bæta verkferla

Starfsstöð er á Keflavíkurflugvelli.

Isavia er vinnustaður þar sem við sýnum hvert öðru virðingu og erum heiðarleg gagnvart sjálfum okkur og öðrum. Við gætum þess að viðhalda gleðinni, erum hugrökk, uppbyggileg og tökum ábyrgð á eigin frammistöðu. Saman náum við árangri.

Við bjóðum upp á hollan og góðan mat í mötuneytum okkar, farsímaáskrift og allt starfsfólk hefur aðgang að heilsu- og líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu.

Umsóknarfrestur er til og með 17.nóvember 2025.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Helga Erla Albertsdóttir, í gegnum netfang [email protected].

Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið.

Við hvetjum áhugasama aðila, óháð kyni og uppruna, að sækja um.

Fríðindi í starfi
  • Líkamsræktarstyrkur
  • Velferðarþjónusta
  • Öflugt starfsmannafélag
Advertisement published3. November 2025
Application deadline17. November 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Keflavíkurflugvöllur, 235 Reykjanesbær
Type of work
Professions
Job Tags