Isavia / Keflavíkurflugvöllur
Isavia / Keflavíkurflugvöllur
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Deildarstjóri framkvæmdadeildar

Isavia leitar að metnaðarfullum leiðtoga í hlutverk deildarstjóra framkvæmdadeildar á Keflavíkurflugvelli. Viðkomandi mun stýra og bera ábyrgð á daglegum rekstri og fylgja eftir hönnun og framkvæmdum á Keflavíkurflugvelli í samræmi við þarfir viðskiptavina með skilvirkni og hagkvæmi að leiðarljósi. Verkefnin eru unnin með innlendum og erlendum sérfræðingum. Viðkomandi þarf að hafa reynslu á hönnun og framkvæmdum og auk þess brennandi áhuga á að starfa í spennandi og síbreytilegu umhverfi á alþjóðaflugvelli.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð á daglegri stjórnun deildar og samræming á verkefnum 

  • Skipulagning hönnunar og framkvæmdar þvert á verkefni 

  • Samskipti við haghafa  

  • Þátttaka í gerð langtímaáætlana, hönnunargagna og útboðsgagna 

  • Ábyrgð á gerð leiðbeininga, ferla og verklagsreglna sem snúa að hönnun og framkvæmd 

  • Önnur verkefni í samráði við forstöðumann og framkvæmdastjóra 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun á sviði verkfræði eða byggingatæknifræði 

  • Stjórnunarreynsla er kostur 

  • Reynsla af sambærilegu starfi við rekstur og viðhald bygginga og tæknikerfa 

  • Frumkvæði, þjónustulund, skipulögð vinnubrögð   

  • Framúrskarandi samskiptafærni 

  • Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti 

  • Geta til að tjá sig faglega á ensku, í rituðu og mæltu máli 

Starfsstöð: Keflavík    

Frekari upplýsingar um starfið veitir Páll Svavar Pálsson forstöðumaður Flugvallaþróunar og uppbyggingar [email protected]  

Advertisement published21. October 2025
Application deadline9. November 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Keflavíkurflugvöllur, 235 Reykjanesbær
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Customer service
Professions
Job Tags