Vegagerðin
Vegagerðin
Vegagerðin

Svæðisstjóri Norðursvæðis

Vegagerðin leitar að framsæknum og árangursdrifnum einstaklingi til að sinna starfi svæðisstjóra Norðursvæðis. Starfið heyrir beint undir forstjóra og svæðisstjóri situr í framkvæmdastjórn Vegagerðarinnar. Svæðisstjóri veitir faglega og stjórnunarlega forystu og ber ábyrgð á framkvæmd stefnu Vegagerðarinnar á svæðinu. Starfsstöð svæðisstjóra er á Akureyri.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stjórnun á starfsemi og verkefnum 
  • Áætlanagerð og fjármál
  • Verkeigandi verklegra framkvæmda á svæðinu 
  • Yfirumsjón með kaupum á ráðgjöf og útboði verka á svæðisvísu
  • Framkvæmd á viðhaldi og þjónustu vegakerfis svæðisins
  • Samskipti við opinbera aðila og hagsmunaaðila
  • Þátttaka í stefnumótun og seta í framkvæmdastjórn
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Verk- eða tæknifræðingur eða önnur menntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun æskileg
  • Farsæl reynsla af stjórnun og mannaforráðum
  • Reynsla af rekstri, áætlanagerð og verkefnastjórnun
  • Þekking og reynsla af innviðaframkvæmdum æskileg
  • Framúrskarandi samskiptafærni og lausnamiðuð nálgun við verkefni
  • Frumkvæði, metnaður og árangursdrifni
  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta   
Advertisement published23. October 2025
Application deadline10. November 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Miðhúsavegur 1, 600 Akureyri
Type of work
Professions
Job Tags