Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Velferðarsvið Reykjavíkurborgar óskar eftir öflugum verkefnastjóra fræðslumála

Velferðarsvið leitar að hugmyndaríkum og drífandi einstaklingi til að leiða fræðslumál sviðsins. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf í metnaðarfullu starfsumhverfi þar sem lögð er áhersla á fagmennsku, samvinnu og að starfsfólk fái að vaxa í starfi.

Verkefnastjóri er hluti af fræðsluhópi Reykjavíkurborgar og vinnur í nánu samstarfi við skrifstofu starfsþróunar og starfsumhverfis á mannauðs- og starfsumhverfissviði.

Reykjavíkurborg er með virka fræðslustefnu með árlegri aðgerðaáætlun og hefur nýlega innleitt stafrænt fræðslukerfi - Torgið - fyrir allt starfsfólk.

Í samræmi við mannréttinda- og velferðarstefnu Reykjavíkurborgar er lögð rík áhersla á að starfsstaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Við hvetjum fólk af öllum kynjum, fatlað fólk og fólk af ólíkum menningarlegum bakgrunni til að sækja um.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þarfagreining, stefnumótun og skipulagning símenntunar, og leiðandi hlutverk í mótun og eftirfylgni fræðsluáætlunar sviðsins
  • Umsjón og utanumhald með fræðslumálum sviðsins í samræmi við velferðar- og fræðslustefnu Reykjavíkurborgar
  • Umsjón með nýtingu Torgsins, fræðslukerfi borgarinnar, á velferðarsviði
  • Leiða nýsköpun og framþróun í símenntun starfsfólks
  • Þátttaka í teymisvinnu og þróunarverkefnum
  • Umsjón með nýliðafræðslu sviðsins og aðkoma að samræmdri nýliðafræðslu borgarinnar
  • Ráðgjöf til stjórnenda um símenntun og starfsþróun
  • Samskipti og samstarf við starfsmenntasjóði og menntastofnanir
  • Þátttaka í vinnuhópum á sviði mannauðsmála, bæði innan sviðs og á vettvangi borgarinnar
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi; framhaldsmenntun er kostur
  • Farsæl reynsla af fræðslumálum og/eða símenntun
  • Þekking og reynsla af fullorðinsfræðslu er æskileg
  • Reynsla af innleiðingu nýrrar tækni og stafrænna lausna í fræðslumálum
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
  • Metnaður, frumkvæði, sjálfstæði og góð skipulagshæfni
  • Íslenskukunnátta á C1-stigi samkvæmt samevrópskum tungumálaramma
  • Hreint sakavottorð samkvæmt lögum sem og reglum Reykjavíkurborgar
Fríðindi í starfi
  • Áhugavert starf við fræðslumál á stærsta vinnustað landsins
  • 36 stunda vinnuviku í fullu starfi
  • Heilsustyrk, menningarkort og frítt í sund
  • Samgöngusamning
  • Gott mötuneyti
Advertisement published8. January 2026
Application deadline22. January 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Type of work
Work environment
Professions
Job Tags