

Sérfræðingur í mannauðsmálum | HR Business Partner
Við hjá Sóltúni heilbrigðisþjónustu leitum að kraftmiklum og metnaðarfullum sérfræðingi á mannauðssvið til að styrkja okkar öfluga teymi og að takast á við daglegan rekstur mannauðstengdra verkefna. Viðkomandi þarf að hafa brennandi áhuga á mannauðsmálum og að þrífast í uppbyggingu og þróun á þeim verkefnum sem eru í gangi hverju sinni.
Um er að ræða 100% starf og æskilegt væri ef viðkomandi gæti hafið störf sem fyrst.
Við leggjum áherslu á jákvætt og styðjandi vinnuumhverfi þar sem fagmennska og þróun skipta máli.
Við hlökkum til að heyra frá þér!
Sóltún heilbrigðisþjónusta
-
Stuðningur við stjórnendur og starfsfólk
-
Ráðningar
-
Þátttaka í fræðslumálum og viðburðum
-
Þátttaka í verkefnum sem tengjast þróun og innleiðingu nýrra mannauðslausna
-
Virk þátttaka í uppbyggingu mannauðsmála og önnur tilfallandi störf
-
Reynsla af sambærilegu starfi er skilyrði.
-
Þekking á helstu mannauðslausnum (t.d. ráðningakerfi, fræðslukerfi) er æskileg.
-
Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði mannauðsstjórnunar, viðskiptafræði eða sálfræði.
-
Frábær samskiptafærni, lausnamiðuð hugsun og geta til að vinna sjálfstætt og í teymi.
- Sveigjanlegur vinnutími
- Opið vinnurými
- Íþróttastyrkur
- Samgöngustyrkur
- Niðurgreiddur hádegismatur
- Velferðartorg
Icelandic




