Reykjavík - Mannauðs- og starfsumhverfissvið
Reykjavík - Mannauðs- og starfsumhverfissvið
Reykjavík - Mannauðs- og starfsumhverfissvið

Sérfræðingur í viðverustjórnun

Skrifstofa starfsþróunar og starfsumhverfis óskar að ráða sérfræðing á sviði viðverustjórnunar í 100% starf. Sérfræðingur í viðverustjórnun er hluti af þriggja manna teymi sem hefur það hlutverk að vinna að lægra veikindahlutfalli hjá Reykjavíkurborg, á grundvelli viðverustefnu Reykjavíkurborgar.

Meðal verkefna eru ráðgjöf og stuðningur við stjórnendur um viðverusamtöl, endurkomusamtöl og aðrar aðgerðir, auk kynningar- og fræðslustarfs. Unnið er náið með starfsfólki mannauðsmála á sviðum borgarinnar og með sérfræðingum mannauðs- og starfsumhverfissviðs.

Skrifstofa starfsþróunar og starfsumhverfis er hluti af mannauðs- og starfsumhverfissviði Reykjavíkurborgar og ber ábyrgð á og veitir ráðgjöf um heilsueflingu, viðverustjórnun, öryggi og vinnuvernd, fræðslu og innri miðlun. Mannauðs- og starfsumhverfissvið er staðsett í Ráðhúsi Reykjavíkur en starfið felur í sér vinnu með stjórnendum á öllum sviðum borgarinnar á fjölbreyttum starfsstöðum um alla borg.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þátttaka í kynningum á vinnustöðum, viðverusamtölum, eftirfylgnisamtölum og endurkomusamtölum.
  • Ráðgjöf við stjórnendur sem taka þátt í verkefninu.
  • Þátttaka í mótun og þróun verklags um lækkun veikindahlutfalls hjá Reykjavíkurborg.
  • Aðkoma að þróun fræðsluefnis fyrir stjórnendur og starfsfólk um viðverumál og afleiðingar hárra fjarvista.
  • Markmiðasetning og utanumhald um árangursmælikvarða og mótun á vörðum um framgang verkefnisins.
  • Aðkoma að stefnumótun um áframhaldandi þróun viðverustefnu.
  • Þátttaka í vinnuhópum og öðrum verkefnum á sviði mannauðsmála.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólagráða sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun á sviði mannauðsmála er æskileg.
  • Reynsla af mannauðsmálum og ráðgjöf við stjórnendur er skilyrði.
  • Reynsla í viðverustjórnun og samstarfi við trúnaðarlækna er æskileg.
  • Reynsla af vinnu við mannauðskerfi (s.s. Vinnustund) og úrvinnslu gagna t.d. í Excel er kostur.
  • Reynsla af skipulagi mönnunar eða vaktaskipulagningu er kostur.
  • Færni í helstu Office forritum s.s. Teams, VivaEngage og Outlook.
  • Sjálfstæði og frumkvæði.
  • Ríkur þjónustuvilji og færni í samvinnu og samskiptum.
  • Íslenskukunnátta á stigi C2 og enskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
Fríðindi í starfi
  • Áhugavert starf við mannauðsmál á stærsta vinnustað landsins
  • 36 stunda vinnuviku í fullu starfi
  • Heilsustyrk, menningarkort og frítt í sund
  • Samgöngusamning
  • Gott mötuneyti
Advertisement published6. January 2026
Application deadline19. January 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Tjarnargata 11, 101 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ReliabilityPathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.HonestyPathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human resourcesPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.Microsoft ExcelPathCreated with Sketch.Microsoft OutlookPathCreated with Sketch.Microsoft PowerPointPathCreated with Sketch.Microsoft WordPathCreated with Sketch.Public administrationPathCreated with Sketch.Email communicationPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Business strategyPathCreated with Sketch.FlexibilityPathCreated with Sketch.Team workPathCreated with Sketch.MeticulousnessPathCreated with Sketch.WindowsPathCreated with Sketch.Customer service
Work environment
Professions
Job Tags