Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Stuðningsfulltrúi óskast í nýjan íbúðakjarna í Hlíðunum

Við leitum að hjartahlýju og lífsglöðu fólki til að ganga til liðs við okkur í nýjum íbúðakjarna við Háteigsveg í Reykjavík. Íbúðakjarninn verður staðsettur í nýbyggðu húsnæði á Sjómannaskólareitnum, hannað af verðlaunaarkitektinum Arnhildi Pálmadóttur, en starfsemin mun hefjast 15. janúar. Taktu þátt í að skapa hlýlegt og öruggt heimili fyrir sjö íbúa með fötlun, þar sem sjálfstæði og vellíðan eru í forgrunni.

Unnið er eftir hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf og þjónandi leiðsögn, þar sem lögð er áhersla á jákvæð og uppbyggileg samskipti. Þjónustan snýst um að efla færni og lífsgæði íbúanna, svo þeir geti lifað innihaldsríku lífi.

Við erum að móta okkar fyrsta starfslið og leitum núna að fólki í 40 – 60% starfshlutfall. Starfið er vaktavinna þar sem jafnframt er unnið aðra hverja helgi. Þjónusta er veitt allan sólarhringinn, alla daga vikunnar.

Ef þú hefur áhuga á að taka þátt í að skapa nýjan íbúðakjarna og vinna fjölbreytt og skemmtilegt starf þar sem þú getur haft raunveruleg áhrif á líf fólks, þá viljum við heyra frá þér!

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að hvetja og styðja einstaklinga til sjálfstæðs lífs með valdeflandi stuðningi og aðstoð.
  • Að styðja einstaklinga við athafnir daglegs lífs s.s. við heimilishald og samfélagsþátttöku.
  • Að sinna umönnun og vera vakandi yfir andlegri og líkamlegri líðan íbúa og aðstoða þá varðandi heilsufarslega þætti eftir þörfum hverju sinni.
  • Að styðja einstaklinga til félagslegrar þátttöku s.s. að rækta félagstengsl, stunda afþreyingu og að sækja menningarviðburði.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð almenn menntun sem nýtist í starfi æskileg.
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði, skipulagshæfni, stundvísi og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Góð íslenskukunnátta B1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
  • Æskilegt er að umsækjandi hafi náð 20 ára aldri.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Fríðindi í starfi
  • Sund og menningarkort Reykjavíkurborgar
  • Heilsustyrkur
  • Samgöngustyrkur
  • Stytting vinnuvikunnar
Advertisement published7. January 2025
Application deadline21. January 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Very good
Location
Háteigsvegur 58, 105 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Punctual
Suitable for
Work environment
Professions
Job Tags