Hrafnista
Hrafnista er stærsta hjúkrunarheimili landsins og alls eru heimilin átta talsins í fimm sveitarfélögum. Þau eru Hrafnista Laugarási, Hraunvangi, Boðaþingi, Ísafold, Skógabæ, Sléttuvegi, Hlévangi og Nesvöllum.
Hjá Hrafnistu starfar öflugur hópur einstaklinga með fjölbreytta menntun, starfsreynslu og með fjölbreyttan bakgrunn.
Ef þú hefur áhuga á að bætast í Hrafnistuhópinn skaltu endilega senda inn umsókn,
Hlökkum til að heyra frá þér.
Starfsmaður í dagþjálfun - Laugarás
Ert þú skapandi einstaklingur með áhuga á handavinnu og langar að vinna með öflugum hópi af fólki í dagþjálfun aldraðra?
Hrafnista Laugarási óskar eftir að ráða einstakling í 80-100% starf á deildina Viðey sem sér um að þjónusta einstaklinga með heilabilunarsjúkdóma. Meginmarkmið starfsemi deildarinnar er að rjúfa einangrun skjólstæðinga sinna sem og að efla þá í að taka þátt í daglegum athöfnum, þjálfa hug og hönd eins og geta hvers og eins býður.
Áhersla er lögð á að gera einstaklingnum kleift að búa heima og viðhalda sjálfsbjargargetu með því að bjóða upp á örvandi og hvetjandi starfssemi.
Ef þú vilt vinna á vinnustað þar sem áherslur eru m.a. öflugur mannauður, framúrskarandi samskipti, þróun á þjónustu og þar sem nýting og þróun á þjónustueflandi verkfærum eru í brennidepli þá viljum við endilega heyra frá þér.
Helstu verkefni og ábyrgð
-
Styðja, leiðbeina og hvetja skjólstæðinga í leik og starfi
-
Samskipti við fjölskyldur skjólstæðinga
-
Taka þátt í utanumhaldi á félagsstarfi, sbr. upplestri, föndri, leikfimi o.þh.
-
Aðstoða við umsjón á vinnustofu, þar sem fer fram ýmis konar handavinna þar sem er t.a.m. prjónað, heklað, málað og teiknað
-
Aðstoða við persónulegt hreinlæti
Menntunar- og hæfniskröfur
-
Góð samskiptahæfni
-
Kostur ef viðkomandi hefur áhuga á handavinnu og hefur áhuga á að efla/hvetja skjólstæðinga í því starfi.
-
Þolinmæði og sveigjanleiki
-
Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
-
Reynsla á sambærilegu starfi kostur
-
Kostur ef viðkomandi er með reynslu í myndlist, handavinnu og/eða tónlist.
Fríðindi í starfi
- Mötuneyti
- Samgöngustyrkur
- Heilsuræktarstyrkur
Advertisement published7. January 2025
Application deadline19. January 2025
Language skills
Icelandic
Very goodRequired
Location
Brúnavegur 13, 104 Reykjavík
Type of work
Skills
ProactivePositivityHuman relationsIndependencePatience
Work environment
Professions
Job Tags
Other jobs (5)
Similar jobs (12)
Starfsmaður í dagdvöl - Hrafnista Ísafold
Hrafnista
Hressar aðstoðarkonur óskast á þriðjudögum og um helgar
Anna Kristín Jensdóttir
Staða sjúkraliða við frístund í Grunnskóla Reyðarfjarðar
Fjarðabyggð
Hlutastarf - Áfylling á Hvolsvelli fyrir Coca-Cola á Íslandi
Coca-Cola á Íslandi
Spennandi starf í íbúðarkjarnanum Árlandi 10
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Urriðaholtsskóli auglýsir eftir starfsfólki í Frístund
Urriðaholtsskóli
Félagsliði í heimaþjónustu
Hafnarfjarðarbær
Hlutastarf á skammtímaheimili fatlaðra
Kópavogsbær
Stuðningsfulltrúi óskast í nýjan íbúðakjarna í Hlíðunum
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Leikskólinn Sólbrekka - mötuneyti
Skólamatur
Aðstoðarfólk óskast á helgarvaktir á Selfossi
NPA miðstöðin
Hresst NPA aðstoðarfólk óskast
NPA miðstöðin