
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Velferðasvið ber ábyrgð á áætlanagerð, samhæfingu og samþættingu verkefna á sviði velferðarþjónustu, eftirliti í samræmi við lög, reglur, samþykktir og pólitíska stefnu í velferðarmálum, mat á árangri og þróun velferðarþjónustu og nýrra úrræða og gerð þjónustusamninga um framkvæmd þjónustunnar. Velferðarsvið býr Reykjavíkurborg ennfremur undir að taka við nýjum velferðarverkefnum frá ríki svo sem í málefnum fatlaðra, öldrunarþjónustu og heilsugæslu.
Velferðarsvið ber ábyrgð á framkvæmd þjónustu á sviði velferðarmála, þar með talinni félagsþjónustu fyrir alla aldurshópa og barnavernd. Velferðarsvið ber ábyrgð á rekstri þjónustumiðstöðva Reykjavíkurborgar og starfseininga sem undir þær heyra. Velferðarsvið vinnur með velferðarráði og barnaverndarnefnd og sinnir málefnum þeirra. Þjónustumiðstöðvar vinna með hverfaráðum í hverfum borgarinnar.
Velferðarsvið sér einnig um rekstur miðlægrar velferðarþjónustu þvert á borgina, átaksverkefna vegna endurhæfingar fólks, heildstæðu forvarnastarfi í Reykjavík, inntöku í húsnæðis- og búsetuúrræði, rekstur hjúkrunarheimila, rekstur framleiðslueldhúss og rekstur heimahjúkrunar í Reykjavík samkvæmt samningi við ríkið þar um.

Skemmtilegt starf stuðningsfulltrúa í búsetukjarna fyrir fatlað fólk
Búsetukjarninn að Sólheimum 21b leitar af starfsmanni til að veita stuðning við fatlað fólk. Í starfinu felst að efla færni notenda til að lifa sjálfstæðu lífi innan og utan heimilis. Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt og tekur þjónustan mið af því að mæta notendum út frá hugmyndafræði um sjálfstætt líf, þjónandi leiðsögn og valdeflingu. Um ræðir mikla líkamlega aðhlynningu Um vaktavinnu er að ræða (morgun-, kvöld-, nætur- og helgarvaktir aðra hverja helgi).
Um er að ræða tímabundna stöðu með möguleika á framlengingu, annarsvegar út sumarið 2026 og hins vegnar út janúar 2027. Starfshlutfall er samkomulag, möguleiki á 40-80% vinnu
Helstu verkefni og ábyrgð
- Einstaklingsmiðuð þjónusta
- Líkamleg aðhlynning
- Hvetja og styðja notendur til sjálfstæðs lífs með valdeflandi stuðningi og aðstoð
- Stuðningur og hvatning við athafnir daglegs lífs
- Vinna eftir hugmyndafræði, lögum og reglum í málefnum fatlaðs fólks
Menntunar- og hæfniskröfur
- Þekking og reynsla í vinnu með fötluðu fólki æskileg
- Sveigjanleiki og hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði, jákvæðni og sjálfstæð vinnubrögð
- Íslenskukunnátta B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
- Viðkomandi þarf að vera 20 ára eða eldri
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar
Fríðindi í starfi
- Bókasafnskort og frítt á söfn með menningarkortinu
- Heilsuræktarstyrkur
- Frítt í sund með ÍTR kortinu
Advertisement published14. January 2026
Application deadline28. January 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Type of work
Skills
ReliabilityProfessionalismClean criminal recordNeatnessPunctualFlexibilityTeam workCare (children/elderly/disabled)Customer servicePatience
Suitable for
Professions
Job Tags
Other jobs (8)

Sjúkraliði með diplómunám
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Hjúkrunarfræðingur í heimahjúkrun
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Sjúkraliði í heimahjúkrun
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Teymisstjóri í heimahjúkrun
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Félagsráðgjafi óskast í Rafræna miðstöð velferðarsviðs
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Umburðarlyndur og lausnamiðaður starfskraftur óskast í viðbragðsteymi
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Velferðarsvið Reykjavíkurborgar óskar eftir öflugum verkefnastjóra fræðslumála
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Hjúkrunarnemar / læknanemar - Droplaugarstaðir
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Similar jobs (12)

Sumarstarf - tvær aðstoðarkonur óskast saman á dagvaktir
Arnheiður og Árdís NPA

Starfsmaður óskast á skammtímadvölina Móaflöt í Garðabæ
Garðabær

Sumarstörf - Sóltún Heilsusetur
Sóltún Heilsusetur

Sjúkraliði á dagdeild gigtlækninga
Landspítali

Umsóknir fyrir ungmenni með fötlun
Sumarstörf - Kópavogsbær

Sjúkraliðar og sjúkraliðanemar á bráðalyflækningadeild A2 Fossvogi
Landspítali

Aðstoðarverkstjórnandi óskast! / Work leader assistant wanted!
NPA miðstöðin

Looking for a person with horse experience!
NPA miðstöðin

Óska eftir aðstoðarkonum í sveigjanlegt hlutastarf
NPA miðstöðin

Starfsmaður óskast á Ægisgrund
Garðabær

Starfsmann vantar í NPA þjónustu
Magnús Jóel

Ferðaþjónusta fatlaðra - Akstur
Teitur