Sumarstörf - Kópavogsbær
Sumarstörf - Kópavogsbær
Sumarstörf - Kópavogsbær

Umsóknir fyrir ungmenni með fötlun

Starfs – og félagsmiðstöðin Höfuð-Borgin er fyrir ungmenni með fötlun á aldrinum 17-25 ára og er starfsemin sniðin að þörfum og getu hvers og eins.

Höfuð-Borgin er með aðsetur í Roðasölum 1, 200 Kópavogi.

Í verkefnum Höfuð-Borgarinnar er lögð áhersla á hefðbundna sumarvinnu hjá Kópavogsbæ í samvinnu við ungmennin, sem aðstoðar með kynningu á almennum vinnumarkaði.

Einnig er boðið upp á faglegt og skemmtilegt félagsmiðstöðvarstarf.

Tveir valmöguleikar eru en hægt er að sækja um að fá stuðning í starfi og þá kemur stuðningur með viðkomandi í vinnu á hverjum degi. Einnig er hægt að sækja um að vera sjálfstæður í starfi og þá sjá starfsmenn Höfuð-Borgarinnar um að finna viðeigandi vinnu fyrir viðkomandi og borga laun hans, annars sér hann um sig sjálfur á vinnumarkaði.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Kópavogs.

Starfstímabil er frá 1. júní – 30. júlí 2026.

Nánari upplýsingar veitir Brynhildur Bergmann Kjartansdóttir forstöðukona Höfuð-Borgarinnar í gegnum tölvupóstfangið [email protected] eða símum 441-9395 / 825-5913.

Advertisement published15. January 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
Location
Roðasalir 1, 201 Kópavogur
Type of work
Suitable for
Work environment
Professions
Job Tags