

Sjúkraliðar og sjúkraliðanemar á bráðalyflækningadeild A2 Fossvogi
Við óskum eftir öflugum og áhugasömum sjúkraliðum eða sjúkraliðanemum til starfa á bráðalyflækningadeild A2 í Fossvogi. Ráðið er í starfið sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi. Einnig er möguleiki á sumarstarfi.
Deildin er 19 rúma lyflækningadeild ætluð sjúklingum með bráð og langvinn lyflæknisfræðileg vandamál sem þarfnast innlagnar á sjúkrahús og falla undir almennar lyflækningar. Hjúkrunarviðfangsefnin á deildinni eru mjög fjölbreytt.
Á deildinni starfar öflugur hópur í þverfaglegum teymum og markvisst unnið að umbótum og framþróun. Hópurinn er samhentur og ríkir góður starfsandi sem einkennist af vinnugleði og metnaði.
Við sækjumst eftir sjúkraliðum sem búa yfir þekkingu og reynslu sem og nýútskrifuðum sjúkraliðum. Við leggjum metnað í að taka vel á móti nýju samstarfsfólki og veita góða einstaklingshæfða aðlögun. Starfið er í vaktavinnu og er starfshlutfall samkomulag.
Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
- Hjúkrun einstaklinga í samvinnu við aðra fagaðila
- Þátttaka í teymisvinnu
- Íslenskt sjúkraliðaleyfi/ vottun um launað starfsnám
- Jákvætt viðhorf, frumkvæði og góðir samskiptahæfileikar
- Faglegur metnaður
- Íslenskukunnátta
Icelandic




























































