

Viltu vera á skrá? Almenn störf á Landspítala
Landspítali er suðupunktur þekkingar, þróunar og þverfaglegrar samvinnu. Lögð er áhersla á fagmennsku, framþróun og stöðugar umbætur. Við stefnum á að vera einn besti vinnustaður landsins sem býður upp á gott starfsumhverfi og samkeppnishæf kjör. Vilt þú taka þátt í vegferðinni með okkur?
Í þessum starfaflokki er eingöngu ráðið í tímabundnar stöður s.s.
Allar ótímabundnar stöður eru auglýstar og þarf að sækja um þær sérstaklega.
Við leitum eftir jákvæðum og þjónustuliprum einstaklingum til að starfa á hinum ýmsu deildum Landspítala. Dæmi um almenn störf eru til dæmis í þvottahúsi.
Umsóknum þessum verður ekki svarað sérstaklega heldur munu stjórnendur hafa samband við þá umsækjendur sem þeir hafa hug á að bjóða starf.
Að loknum umsóknarfresti verður birt ný auglýsing. Ef þú hefur áhuga á að vera áfram á skrá, ert þú velkomin/n að sækja um að nýju.
- Verkefni og ábyrgð eru mismunandi eftir störfum
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
- Jákvætt viðhorf, frumkvæði og góðir samskiptahæfileikar
- Íslensku- og enskukunnátta
- Almenn tölvukunnátta
Icelandic
English




























































