Leikskólinn Furuskógur
Leikskólinn Furuskógur
Leikskólinn Furuskógur

Sérkennsla - Stuðningur

Viltu vera hluti af skemmtilegum hópi starfsfólks í Furuskógi?


Við í leikskólanum Furuskógi leitum að metnaðarfullum og umhyggjusömum einstaklingi til að ganga til liðs við sérkennsluteymið okkar. Starfið felst í að veita einstaklingsmiðaðan stuðning við börn sem þurfa sérstaka aðstoð í leik og námi.


Leikskólinn er starfræktur í tveimur húsum í Fossvoginum og liggur vel við samgöngum.Einkunnarorð skólans eru Gleði, Vinsemd og Virðing, og er áhersla lögð á lýðræði, sköpun, útinám og lífsleikni í starfi með börnunum. Skólinn hlaut Regnbogavottun í apríl 2022.


Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um. Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.


Óskað er eftir einstaklingi með menntun/reynslu sem nýtist í starfi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Helstu verkefni og ábyrgð eru að sinna umönnun, kennslu og þjálfun barna í takt við þarfir þeirra, setja upp einstaklingsáætlanir og endurmeta þær, og vera í samstarfi við foreldra, fagaðila og aðra ráðgjafa eftir atvikum.Starfið er unnið í samvinnu við sérkennslustjóra og deildarstjóra viðkomandi deildar.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leikskólakennaramenntun, þroskaþjálfamenntun eða önnur sambærileg menntun
  • Reynsla af sérkennslu æskileg
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Stundvísi og áreiðanleiki
  • Góð tölvukunnátta
  • Frumkvæði og sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Íslenska B2 skv. samevrópska tungumálarammanum er skilyrði
Fríðindi í starfi
  • Leikskólakennaramenntun, þroskaþjálfamenntun eða önnur sambærileg menntun
  • Reynsla af sérkennslu æskileg
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Stundvísi og áreiðanleiki
  • Góð tölvukunnátta
  • Frumkvæði og sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Íslenska B2 skv. samevrópska tungumálarammanum er skilyrði
Advertisement published22. August 2025
Application deadline5. September 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
Location
Efstaland 28, 108 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags