Leikskólinn Furuskógur
Leikskólinn Furuskógur
Leikskólinn Furuskógur

Deildarstjóri

Viltu vera hluti af skemmtilegum hópi starfsfólks í Furuskógi?


Laus er staða deildarstjóra í leikskólanum Furuskógi í Fossvogi. Leikskólinn er starfræktur í tveimur húsum í Fossvoginum og liggur vel við samgöngum.Einkunnarorð skólans eru Gleði, Vinsemd og Virðing, og er áhersla lögð á lýðræði, sköpun, útinám og lífsleikni í starfi með börnunum. Skólinn hlaut Regnbogavottun í apríl 2022.


Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um. Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.


(Ef ekki fæst leikskólakennari í starfið kemur til greina að ráða einstakling með aðra menntun sem nýtist í starfi).

Helstu verkefni og ábyrgð

Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra. Deildarstjóri er hluti af stjórnunarteymi skólans, ber ábyrgð á stjórnun og skipulagningu starfs deildar og samstarfi við foreldra.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara
  • Reynsla af starfi í leikskóla
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Stundvísi og áreiðanleiki
  • Áhugi á leikskólastarfi
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Góð tölvukunnátta er æskileg
  • Íslenska B2 skv. samevrópska tungumálarammanum er skilyrði
Fríðindi í starfi
  • Forgangur í leikskóla fyrir börn starfsfólks og afsláttur af leikskólagjöldum
  • Stytting vinnuvikunnar - 36 stunda vinnuvika miðað við fullt starf
  • Frítt fæði á vinnutíma, grænmetis- og veganfæði í boði
  • Samgöngustyrkur
  • Menningarkort sem veitir aðgang að söfnum borgarinnar og ókeypis bókasafnskort
  • Heilsuræktarstyrkur og frítt í sundlaugar Reykjavíkur
Advertisement published22. August 2025
Application deadline5. September 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
Location
Efstaland 28, 108 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags