

Deildarstjóri – Leikskólinn Hlíðarendi
Leikskólinn Hlíðarendi óskar eftir að ráða deildarstjóra í 100% starfshlutfall.
Leikskólinn Hlíðarendi er fjögurra deilda og er staðsettur í útjaðri Setbergshverfis. Helstu áhersluþættir eru hreyfing, lífsleikni og umhverfismennt.
Leikskólar Hafnarfjarðar hafa innleitt betri vinnutíma sem miðast við 36 stunda vinnuviku fyrir allt starfsfólk. Starfsfólk í Félagi leikskólakennara og Þroskaþjálfafélaginu hefur kosið fyrirkomulag sem felur í sér að starfsár þeirra er sambærilegt starfsári grunnskólakennara. Þessir starfsmenn taka því út vinnutímastyttingu í kringum jól og áramót, þegar vetrarfrí er í grunnskólum, í dymbilviku og með lengri fjarveru á sumrin.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Að vinna að og bera ábyrgð á uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra
- Að bera ábyrgð á stjórnun, skipulagningu, framkvæmd og mati á faglegu starfi deildarinnar
- Að bera ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá og tryggja að öll börn á deildinni fái kennslu, leiðsögn, umönnun og/eða sérkennslu eftir þörfum
- Að bera ábyrgð á samstarfi við foreldra
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf til kennslu (í leik-grunn- eða framhaldsskóla sbr. eitt leyfisbréf)
- Reynsla af sambærilegu starfi eða stjórnun kostur
- Færni í samskiptum og sveigjanleiki
- Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og faglegur metnaður
- Góð íslenskukunnátta
- Góð tölvukunnátta
Fríðindi í starfi:
- Heilsuræktarstyrkur
- 75% afsláttur af leikskólagjöldum
- Forgangur á leikskóla
- Bókasafnskort
- Sundkort
Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um.
Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar um starfið veita Bryndís Guðlaugdóttir leikskólastjóri og Halldóra Eiríksdóttir aðstoðarleikskólastjóri í síma 555 1440. Fyrirspurnir má einnig senda á netfangið [email protected]
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Samband íslenskra sveitafélaga og KÍ v/Félags leikskólakennara.
Umsóknarfrestur er til og með 1. júlí 2025.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
















































