Reykjanesbær
Reykjanesbær
Reykjanesbær

Myllubakkaskóli- List- og verkgreinakennari

Starfssvið: Myndmennt / textíl
Myllubakkaskóli leitar að metnaðarfullum og áhugasömum kennara með þekkingu og reynslu af skólastarfi.
Í Myllubakkaskóla eru um 350 nemendur og 70 starfsmenn. Einkunnarorð skólans eru: Virðing - Ábyrgð - Jafnrétti - Árangur
Í skólanum er meðal annars lögð áhersla á jöfn tækifæri til náms, heilbrigði, vellíðan og metnað í því sem við tökum okkur fyrir hendur.
Ráðning er tímabundin frá 1. ágúst 2025 til 31. júlí 2026. Um er að ræða 80 - 100% starf og laun og starfskjör fara eftir kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ vegna FG.
Gildi Reykjanesbæjar eru virðing, eldmóður og framsækni og mikilvægt er að viðkomandi endurspegli þau gildi í sínum störfum.

Helstu verkefni og ábyrgð

•    List- og verkgreinakennsla í 1. - 7. bekk
•    Valgreinakennsla á unglingastigi 
•    Önnur fagleg vinna í skólanum

Menntunar- og hæfniskröfur

•    Leyfi til að nota starfsheitið kennari.
•    Reynsla af kennslu í sjónlistum, textíl og/eða hönnun og smíði.
•    Góð íslenskukunnátta.
•    Færni í að vinna í teymum og að fjölbreyttum verkefnum.
•    Faglegur metnaður og ánægja af starfi með börnum.
•    Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni.
•    Frumkvæði og skipulögð vinnubrögð. 
•    Jákvæðni gagnvart skólaþróun.

Hlunnindi

•    Bókasafnskort.
•    Gjaldfrjáls aðgangur að menningarhúsum.
•    Gjaldfrjáls aðgangur í sund.
•    Gjaldfrjáls aðgangur í strætó.

Advertisement published13. June 2025
Application deadline27. June 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Sólvallagata 6A, 230 Reykjanesbær
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.TeacherPathCreated with Sketch.TeachingPathCreated with Sketch.PaintingPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Team work
Professions
Job Tags