

Síðuskóli: Kennari með verkefnastjórn ÍSAT
Við Síðuskóla er laus til umsóknar 100% staða kennara með verkefnastjórn ÍSAT ásamt kennslu nemenda með íslensku sem annað tungumál. Ráðið er í starfið frá 1. ágúst 2025. Þetta er tímabundin ráðning skólaárið 2025-2026.
Síðuskóli starfar samkvæmt hugmyndafræði SMT-skólafærn, er Grænfánaskóli og hefur fengið viðurkenningu sem Réttindaskóli UNICEF. Í skólanum er unnið með hvatningu og hrós sem er góð leið til að sýna börnum jákvæða athygli, kenna þeim æskilega hegðun og viðhalda henni.
Í Síðuskóla er sérdeild fyrir einhverfa nemendur og þjónustar hún þá nemendur sem búsettir eru á Akureyri og hlotið hafa einhverfugreiningu.
Í Síðuskóla sýnum við ábyrgð, virðingu og vináttu.
Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.siduskoli.is
Leitað er að jákvæðum, lausnamiðuðum og samviskusömum einstaklingi með mikinn metnað, sem sýnt hefur árangur í störfum sínum og leggur áherslu á vellíðan og árangur nemenda í samstarfi við aðra starfsmenn og stjórnendur skólans.
- Skipuleggur nám, kennslu og námsmat ÍSAT nemenda sem þarfnast námsaðlögunar, í samvinnu við umsjónarkennara.
- Heldur utan um og tekur á móti ÍSAT nemendum.
- Heldur utan um og tekur þátt í foreldrasamstarfi í tengslum við ÍSAT nemendur.
- Vinnur að og heldur utan um þróunarstarf í skólanum í tengslum við ÍSAT nemendur.
- Tekur almennt þátt í þróunarstarfi skólans.
- Situr í ÍSAT teymi grunnskóla Akureyrar í samvinnu við Fræðslu- og lýðheilsusvið Akureyrarbæjar.
- Kennari með verkefnastjórn vinnur í samstarfi og samvinnu við aðra starfsmenn skólans og ber ábyrgð á starfi sínu gagnvart skólastjóra.
- Kennari með verkefnastjórn ÍSAT fylgir stefnu skólans í starfi.
- Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla.
- Framhaldsmenntun í sérkennslu eða öðru námi sem nýtist í starfi er kostur.
- Hefur á valdi sínu fjölbreyttar kennsluaðferðir sem taka mið af mismunandi þörfum, áhuga og getu nemenda.
- Reynsla, hæfni og þekking á kennslu og námsaðlögun.
- Reynsla, hæfni og þekking til að nýta upplýsinga- og tæknimennt í kennslu fyrir nemendur með íslensku sem annað tungumál.
- Þekking og reynsla af teymisvinnu og teymiskennslu.
- Þekking og/eða vilji til að starfa eftir hugmyndafræði SMT.
- Góðir skipulagshæfileikar.
- Sjálfstæð vinnubrögð.
- Frumkvæði og samstarfsvilji.
- Sveigjanleiki og víðsýni í starfi og samskiptum.
- Hæfni í mannlegum samskiptum.
- Að vera reiðubúinn til að leita nýrra leiða í skólastarfi.
- Áhugi á þróunarstarfi.
- Gott vald á íslensku, bæði í töluðu og rituðu máli er skilyrði.
- Gerð er krafa um vammleysi s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.












