Árneshreppur
Árneshreppur
Árneshreppur

Finnbogastaðaskóli í Árneshreppi á Ströndum - Skólastjóri og grunnskólakennari

Finnbogastaðaskóli óskar eftir að ráða skólastjóra og grunnskólakennara.

Finnbogastaðaskóli í Árneshreppi á Ströndum var opnaður á ný í fyrra haust. Þar eru eins og er tveir nemendur.

Leitað er að lausnamiðuðum skólastjóra sem er tilbúinn að leiða skapandi skólastarf litlum skóla. Einnig vantar kennara sem er tilbúinn að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi.

íbúðarhúsnæði fylgir starfinu. Við hlökkum til að taka á móti þér og þinni fjölskyldu hér í Árneshreppi.

Staðan er laus frá ágúst 2025 eða eftir samkomulagi. Launakjör eru samkvæmt samningi KÍ.

Umsóknum skal fylgja greinargott yfirlit yfir nám og fyrrverandi störf, leyfisbréf til kennslu, ábendingar um meðmælendur sem og almennar upplýsingar um viðkomandi.

Nánari upplýsingar um skólann veita: Bjarnheiður Júlía Fossdal, formaður skólanefndar í síma: 690 7320 eða á netfanginu : [email protected] og Eva Sigurbjörnsdóttir, oddviti í síma: 4514001 eða á netfanginu : [email protected].

Umsóknarfrestur er til 28. júní 2025.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Frekari upplýsingar um bæði starfið og Árneshrepp má finna hér :://s.craft.me https/LajAooB4Ysthjk

Helstu verkefni og ábyrgð

- Skipulag og mótun skólastarfs

- kennsla samkvæmt markmiðum Aðalnámskrár grunnskóla með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda.

- kennara sem hefur hagsmuni nemenda að leiðarljósi og sýnir hverjum og einum virðingu, áhuga og umhyggju.

- Þáttaka í skólaþróun í samræmi við stefnu sveitarfélagsins.

- Önnur afmörkuð verkefni innan skólans.

Menntunar- og hæfniskröfur

- Leyfisbréf kennara.

- Þekking og reynsla af teymiskennslu er kostur.

- Þolinmæði og hæfni í mannlegum samskiptum.

- Þekking og áhugi á kennslu- og uppeldisfræði er kostur.

- Hæfni í samskiptum og samstarfi með foreldrum.

- Ábyrgð í starfi og góðir skipulagshæfileikar.

- Áhugi á að taka þátt í teymisstarfi og umbótaverkefnum.

- Góð íslenskukunnátta.

Fríðindi í starfi
  • Húsnæði fylgir.
Advertisement published12. June 2025
Application deadline28. June 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Very good
Location
Finnbogastaðir lóð 1, 524 Árneshreppur
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.LeadershipPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Team work
Professions
Job Tags