

Deildarstjóri á unglingastigi - Víðistaðaskóli
Víðistaðaskóla leitar eftir skapandi, hugmyndaríkum og drífandi deildarstjóra á unglingastig skólans.Um er að ræða 100% starf sem skiptist á milli stjórnunar og kennslu. Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2025. Deildarstjórinn bætist við góðan hóp starfsmanna skólans og þá sérstaklega kennara á unglingastigi. Í skólanum ríkir góður starfsandi og er samheldni og samstaða meðal starfsmanna.
Í Víðistaðaskóla eru rúmlega 500 nemendur og um 100 starfsmenn. Unglingastig skólans er eitt það stærsta í sveitarfélaginu, með um 250 nemendur.
Við leggjum áherslu á fjölbreytileikann, líðan nemenda og fjölbreytta kennsluhætti. Gildi skólans eru ábyrgð, virðing og vinátta. Í skólanum er unnið eftir SMT skólafærni þar sem lögð er áhersla á að styrkja og efla jákvæð samskipti milli nemenda sem annarra í skólasamfélaginu. Við erum heilsueflandi grunnskóli sem hugsar um umhverfi sitt í anda Græn fánans.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Leiðir unglingastig og hefur yfirumsjón með verkefnum innan kennslustigs
- Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
- Leiða námsmatsvinnu
- Tekur á hegðunarvanda nemenda á kennslustigi
- Taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu og mótun á skólastarfi
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
- Vinna samkvæmt stefnu skólans
- Vinna að því að skapa gott andrúmsloft í skólanum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks
- Önnur verkefni í samræmi við starfslýsingu
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar og/eða uppeldis- eða kennslufræði er kostur
- Farsæl kennslu- og stjórnunarreynsla í grunnskóla
- Haldgóð þekking á kennslufræði unglingastigs
- Mjög góð þekking og reynsla af fjölbreyttu námsmati
- Haldgóð þekking á Mentor, sérstaklega námsmatshlutanum
- Leikni í fjölbreyttum kennsluháttum, námsaðlögun og samþættingu
- Þekking og reynsla af SMT er kostur
- Leiðtogafærni og hæfni til að leiða framsækið skólastarf
- Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
- Góð íslenskukunnátta
Nánari upplýsingar um starfið veitir Dagný Kristinsdóttir skólastjóri, í síma 664-5890, [email protected]
Umsóknarfrestur er til og með 2. júlí 2025.
Umsókn fylgi greinargóð ferilsskrá, leyfisbréf til kennslu og greinargerð um framtíðarsýn umsækjanda á skólastarf og reynslu við stjórnun. Gerð er krafa um hreint sakavottorð.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.






































