

Deildarstjóri Veraldar - Víðistaðaskóli
Víðistaðaskóli auglýsir stöðu deildarstjóra í Veröld sem er nýtt skólaúrræði vegna barna sem eru umsækjendur um alþjóðlega vernd. Veröld byggir á góðu starfi sem þróað hefur verið undanfarin ár sem kennslu- og stuðningsúrræði fyrir börn með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.
Við leitum að framsýnni, skipulagðri og áhugasamri manneskju sem er tilbúin að leggja í þá vegferð að byggja upp og skapa faglegt og gott skólaumhverfi fyrir nemendur með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.
Nemendur Víðistaðaskóla eru ríflega 500 í 1.-10.bekk. Starfsmenn skólans eru liðlega 100 og ríkir góður starfsandi og samheldni innan hópsins. Við störfum eftir leiðarljósunum ábyrgð- virðing- vinátta. Við leggjum áherslu á líðan nemenda, fjölbreytta kennsluhætti, nemendalýðræði og að hver og einn fái tækifæri til að vera eins og hann er.
Um 100% starf er að ræða, sem skiptist í stjórnun og kennslu. Ráðið er í stöðuna frá 1.ágúst.
Helstu verkefni:
- Stýrir daglegu starfi og verkefnum innan deildar
- Annast eftirfylgd einstaklings- og kennsluáætlana og aðfanga til kennslu, stýrir faglegri vinnu og aðstoðar starfsfólk deildar við dagleg verkefni
- Stýrir samráðsfundum deildar og samstarfi kennara og annarra starfsmanna
- Ber ábyrgð á skýrslum um nemendur deildar, boðar og stýrir móttöku- og skilafundum vegna nemenda deildarinnar
- Annast upplýsingamiðlun deildar, s.s. fréttabréf og er tengiliður við foreldra
- Er tengiliður við stofnanir utan skólans vegna nemendamála
- Ber ábyrgð á gerð og framkvæmd tilfærsluáætlana vegna nemenda deildar sem fá dvalarleyfi og fara í almennan grunnskóla
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu
Menntunar og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf til kennslu í grunnskóla
- Framhaldsmenntun á sviði menntunar, fjöltyngis og fjölmenningar eða sambærileg menntun er æskileg
- Kennslureynsla í grunnskóla
- Reynsla af stjórnun af fjölbreyttu tagi, ekki síst í grunnskóla
- Reynsla af kennslu nemenda með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn
- Þekking á áfallamiðaðri nálgun í skólastarfi er kostur
- Framúrskarandi hæfni í samskiptum og samstarfshæfni
- Reynsla og áhugi af starfi með börnum og ungmennum
Umsóknarfrestur er til og með 19. júní 2025
Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Greinargóð ferilskrá fylgi umsókn.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Dagný Kristinsdóttir, skólastjóri, [email protected] sími 6645890
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.










































